Stjórnendur fyrirtækja innan Félags atvinnurekenda og Samtaka iðnaðarins eru frekar neikvæðir en jákvæðir þegar kemur að því að ganga til viðræðna við Evrópusambandið. Ekkert þeirra félagasamtaka eða stjórnmálaflokka sem Heimildin hafði samband við treysti sér til þess að taka afgerandi afstöðu í ESB-umræðunni.
Aðeins Samtök iðnaðarins og Félag atvinnurekenda hafa kannað hug sinna félagsmanna sérstaklega og þar er meirihluti andvígur því að ganga til viðræðna við ESB eða neikvæður gagnvart aðild. Enginn flokkur í stjórnarandstöðu á Alþingi svaraði spurningum Heimildarinnar um málefni tengd þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB, þar á meðal þeirri spurningu hvort hann hygðist virða þjóðaratkvæðagreiðsluna yrði ákveðið að ganga til samninga við ESB.


















































Athugasemdir