Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í dag að framtíð NATO væri „mjög slæm“ ef bandalagsríki Bandaríkjanna hjálpuðu ekki til við að opna Hormússund, mikilvæga olíuflutningaleið sem Íran hefur í raun lokað í stríðinu í Miðausturlöndum.
Í stuttu viðtali við The Financial Times sagði Trump að á sama hátt og Bandaríkin hefðu aðstoðað Úkraínu í stríðinu við Rússland, ætlaðist hann til þess að Evrópa hjálpaði til varðandi Hormússund, en lokun þess hefur valdið gríðarlegum hækkunum á orkuverði um allan heim.
„Það er bara viðeigandi að þeir sem hagnast á sundinu hjálpi til við að tryggja að ekkert slæmt gerist þar,“ sagði Trump og hélt því fram að Evrópa og Kína væru mjög háð olíu frá Persaflóa, ólíkt Bandaríkjunum.
„Ef engin viðbrögð koma eða ef þau eru neikvæð, þá held ég að það verði mjög slæmt fyrir framtíð NATO,“ bætti hann við.
Bandaríkin hófu stríð gegn Íran 28. febrúar með fulltingi Ísraels og hafa gefið mismunandi og stundum misvísandi skýringar á stríðsrekstrinum. Ein skýringin hefur verið aðgerð til að stöðva mögulega þróun Írans á kjarnorkuvopnum, en áður hafði Trumps sagst hafa gjöreyðilagt getu þeirra til þess í loftárásum í júní í fyrra. Önnur skýringin hefur verið áhersla á stjórnarskipti, en Trump-stjórnin hefur farið fram og til baka með hana. Sú þriðja er skýring Trumps að hann hafi haft á tilfinningunni að Íran myndi gera árás á Bandaríkin. Fjórða skýringin er að tækifæri hafi skapast til að drepa marga æðstu ráðamenn Írans í einni árás, þar sem upplýsingar hefðu fengist um að þeir væru samankomnir.
Hver sem skýringin er hafði Bandaríkjastjórn ekki samráð við bandamenn sína um stríðið, eða þá Bandaríkjaþing, heldur einungis Ísrael.
„Við erum með nokkuð sem heitir NATO,“ sagði Trump í viðtalinu við Financial Times, um bandalagið sem hann hefur oft gagnrýnt. „Við höfum verið mjög almennilegir. Við þurftum ekki að hjálpa þeim með Úkraínu. Úkraína er í þúsunda mílna fjarlægð frá okkur... En við hjálpuðum þeim. Nú sjáum við til hvort þeir hjálpi okkur. Því ég hef lengi sagt að við munum vera til staðar fyrir þá en þeir munu ekki vera til staðar fyrir okkur. Og ég er ekki viss um að þeir yrðu til staðar.“
Trump hefur dregið verulega úr stuðningi sínum við Úkraínu og sagt Bandaríkin græða á því að selja Úkraínu vopn.
Þegar hann var spurður um hvaða hjálp þyrfti, sagði Trump „hvað sem þarf“. Hann bætti við að bandamenn ættu að senda skip sem hreinsa upp tundurdufl, en Evrópa á mun fleiri slík en Bandaríkin.
Trump gaf í skyn að hann vildi evrópskar sérsveitir eða aðra hernaðaraðstoð til að útrýma Írönum sem væru að „valda ónæði“ í Persaflóa með drónum og tundurduflum. „Þeir eiga ekkert eftir nema að valda smá vandræðum í sundinu en þetta fólk hagnast á því og það ætti að hjálpa okkur að gæta þess. Við munum hjálpa þeim. En þau ættu líka að vera þarna. Það þarf eiginlega marga til að vakta fáa.“
Trump sagðist búast við því að Kína myndi hjálpa til við að opna sundið áður en hann ferðast til Peking í lok þessa mánaðar á leiðtogafund með Xi Jinping, í sinni fyrstu ferð til Kína á öðru kjörtímabili sínu.
„Ég held að Kína ætti líka að hjálpa því Kína fær 90 prósent af olíu sinni frá sundinu,“ sagði Trump. Að bíða fram að leiðtogafundinum væri of seint, sagði hann. Þá sagðist hann líklega þurfa að fresta fundinum með Xi Jinping.





























Athugasemdir