Hreiðrið
Leikmynd, búningar og brúður: Eva Björg Harðardóttir Tónlist: Sigrún Harðardóttir Ljósahönnun: Jóhann Bjarni Pálmason Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson
Ljúf og lágstemmd barnasýning þar sem börnin fá að njóta sín.
Sérstök gleði fylgir því að kynna börnum fyrir leikhúsi. Þau eru svo einlæg í sinni aðdáun og heillast svo innilega að það er nánast ómögulegt að hrífast ekki með þeim. Leikhópurinn Miðnætti frumsýndi um síðustu helgi Hreiðrið í samvinnu með Þjóðleikhúsinu, leiksýningu fyrir allra yngstu leikhúsgestina og öll framsetning er hugsuð út frá þeirra þörfum þar á meðal sýningartímarnir sem eru kl. 11:00, 13:00 og 15:00. Ljósin eru tempruð, tónlistin aflíðandi og áhorfendur sitja á gólfinu í kringum hreiðrið. Sýningartíminn er sömuleiðis stuttur, rétt um fjörutíu mínútur, og boðið er upp á leikstund eftir að formlegri dagskrá lýkur.
Leikhópurinn allur er skrifaður fyrir handritinu og greinilegt að þau eru samstíga. Hreiðrið fjallar um fyrstu skref lítils unga eftir að hann klekst út úr egginu og er studdur dyggilega af eldri spóa. Fuglarnir tveir hafa ýmislegt skemmtilegt fyrir stafni, til dæmis að elda og baða sig. Litlu gestirnir eru hvattir til …

















































Athugasemdir