Innlagnir vegna áfengistengdra sjúkdóma hefur kostað íslenska ríkið 11 milljarða króna á síðustu sautján árum að því er fram kemur í Læknablaðinu. Þetta kemur fram í rannsókn Engilberts Sigurðssonar, prófessors við lagadeild Háskóla Íslands. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar er að áfengistengdum innlögnum á Landspítalann fjölgar jafnt og þétt og hefur gert á árabilinu 2005 til 2022 og er sá tími sem rannsóknin tekur til.
Algengustu ástæður innlagna í rannsókninni voru geð- og atferlisraskanir en Engilbert er jafnframt sérfræðingur í geðlækningum og yfirlæknir við geðþjónustu Landspítalans. Sömuleiðis eru áfengistengdir lifrarsjúkdómar algengir, briskirtilsbólga og sjúkdómar í taugakerfinu. Þá er ótalið að áfengi er skýr orsakaþáttur í sjö mismunandi tegundum krabbameina.
Rannsóknin sýnir 88 prósent aukningu í nýgengi innlagna fyrir hverja 100 þúsund íbúa á ári á þessum sautján árum.
Kemur ekki á óvart
Engilbert segir í greininni að niðurstöðurnar séu mikilvægar en því miður komi þær ekki á óvart í ljósi þróunar …















































Athugasemdir