Rósin lokar á Vinstrið

Eft­ir upp­nám í kjöl­far próf­kjörs hef­ur Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­ið Rós­in ákveð­ið að standa áfram að baki flokkn­um í stað þess að hefja sam­starf við Vinstr­ið.

Rósin lokar á Vinstrið
Guðný Maja Riba Varaformaður Samfylkingarfélagsins Rósarinnar undirritar yfirlýsingu fyrir hönd stjórnar félagsins, þar sem horfið er frá tilraun formanns hennar til að hefja samstarf við Vinstrið. Mynd: HULDA MARGRET

Stjórn Rósarinnar, félags innan Samfylkingarinnar, hefur lokið viðræðum við stjórnmálaaflið Vinstrið um mögulegt samstarf vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Niðurstaðan er að Rósin mun fylkja sér áfram að baki Samfylkingunni, fremur en að ganga til liðs við Vinstrið.

Aðdragandi viðræðnanna var ósætti meðlima Rósarinnar, og formanns hennar, Guðmundar Inga Þóroddssonar, með að hann hlyti ekki sæti ofarlega á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í maí. Rósin sagði sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar í kjölfarið. Þá sagðist Guðmundur Ingi vera „með plan“ og hóf síðan viðræður við Vinstrið, áður nefnt Vor til vinstri, sem er sameinað framboð Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, sem kjörin var fyrir Sósíalista, og Vinstri grænna.

Í yfirlýsingu Rósarinnar í dag, sem er undirrituð af varaformanni hennar, Guðnýju Maju Riba, er niðurstaðan gerð ljós. 

„Að undangengnu mati hefur stjórn Rósarinnar ákveðið einróma að halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar og styðja hana í komandi kosningum. Skýr vilji stjórnar er að vinna að festu, samstöðu og ábyrgri málefnalegri vinnu.“

Þá er vísað óbeint til umræðu um fordóma gagnvart formanni Rósarinnar, sem er formaður Afstöðu, félags fanga.

„Ferlið hefur verið lærdómsríkt og undirstrikað mikilvægi opinnar umræðu um fordóma og stöðu jaðarsettra hópa í samfélaginu. Rósin hefur um árabil lagt sitt af mörkum til þeirrar umræðu og mun halda þeirri vinnu áfram af ábyrgð og festu,“ segir í yfirlýsingunni.

Rósin óskar síðan Samfylkingunni „til hamingju með öflugan og fjölbreyttan framboðslista“.

Athygli vakti í myndatöku fyrir framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík í dag að Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, sem hafnaði í öðru sæti í prófkjöri flokksins, var ekki viðstödd. Hún var sögð veik.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Fyrirsögn pistilsins gefur alranga mynd af atburðarrásinni en glögga mynd af afstöðu ritstjórnar Heimildarinnar til framboðs vinstrimanna.

    Atburðarrásin virðist hafa verið á þessa leið: Eftir ósætti um uppstillingu á lista Samfylkingarinnar, segir Rósin sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar. Formaður Rósarinnar, Guðmundur Ingi Þóroddsson segist í framhaldi munu leita eftir samstarfi við Vinstrið. Þá er kippt í spotta og stjórn Rósarinnar þvinguð til þess að snúa við blaðinu. Hún gefur út dæmalausa yfirlýsingu, þar sem hún étur ofan í sig fyrri gagnrýni, og óskar flokknum „til hamingju með öflugan og fjölbreyttan framboðslista“. Enn fremur segir þar að stjórn Rósarinnar standi einhuga að yfirlýsingunni, sem undirrituð er af varaformanni, en ekki formanni…

    Fyrir þá sem lesa fyrirsagnir er engu líkara en að Vinstrið hafi reynt að draga Rósina á tálar en Rósin skellt á nefið á þeim.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár