Margrét Halla Hansdóttir Löf fór fram á að réttarhöldum yfir henni væri haldið fyrir luktum dyrum en steig síðan fram í viðtali í útvarpsþætti um málið á RÚV. Afbrotafræðingurinn Margrét Valdimarsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, segir að það hafi komið á óvart að dómari hafi fallist á að loka réttarhöldunum á sínum tíma.

Margrét segir almenna reglu vera að umfjöllun í fjölmiðlum þegar kemur að sakamálum hafi áhrif, þótt erfitt sé að meta slíkt. Hún setur spurningamerki við tímasetningu viðtalsins en málið bíður þess að vera tekið fyrir í Landsrétti.
„Tímasetning umfjöllunarinnar er óheppileg þegar málinu er ekki lokið,“ segir Margrét. Flest gögn hnígi að því að umfjöllun um sakamál hafi áhrif á almenningsálitið.
Spurð hvort það sé í raun eðlismunur á glæpum Margrétar Löf, sem banaði föður sínum eftir áralangt heimilisofbeldi sem …
















































Athugasemdir