Verðbólgan lækkar ekki – mælist áfram 5,2 prósent

Verð­bólga síð­ustu tólf mán­aða mæl­ist nú 5,2 pró­sent en án hús­næð­is er hún 4,5 pró­sent. Þetta er þvert á spár grein­ing­ar­að­ila sem spáð höfðu lækk­un.

Verðbólgan lækkar ekki – mælist áfram 5,2 prósent
Útsölulok Hækkunin í febrúar skýrist að stórum hluta af því að vetrarútsölum er lokið víða. Föt og skór hækkuðu um 5,1 prósent. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94 prósent milli janúar og febrúar og stendur nú í 674,6 stigum, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Án húsnæðis hækkaði vísitalan enn meira, eða um 1,09 prósent.

Mestu skiptir þó að verðbólga síðustu tólf mánaða mælist nú 5,2 prósent. Án húsnæðis er hún 4,5 prósent. Þetta er þvert á spár greiningaraðila sem höfðu spáð því að verðbólga myndi strax gefa aðeins eftir.

Útsölulok hækka verð

Hækkunin í febrúar skýrist að stórum hluta af því að vetrarútsölum er lokið víða. Föt og skór hækkuðu um 5,1 prósent og húsbúnaður og heimilistæki um 5,4 prósent.

Matvara og óáfengir drykkir hækkuðu um 0,9 prósent. Einnig hækkuðu gjöld fyrir vatnsveitu, sorphirðu og fráveitu um 4,3 prósent og flugfargjöld til útlanda um 6,8 prósent.

Á móti lækkaði eldsneytisverð. Dísil lækkaði um 5,6 prósent og bensín um 6,0 prósent.

Rangt eldsneytisverð í janúar

Í tilkynningu Hagstofunnar segir að við yfirferð gagna hafi komið í ljós að rangt eldsneytisverð hafi verið skráð hjá einum smásöluaðila í janúar. Lækkun bensíns og dísils í febrúar skýrist að miklu leyti af þeirri leiðréttingu.

„Lækkun á dísel í janúar hefði átt að vera 28,1% (áhrif á vísitölu -0,30%) og lækkun á bensíni hefði átt að vera 31,5% (-0,78%),“ segir í tilkynningunni. Leiðréttingin hefur þó ekki áhrif á áður birtar janúartölur, að því er Hagstofan segir.

Vísitala neysluverðs í febrúar gildir til verðtryggingar í apríl.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
1
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
4
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár