Miðflokkurinn er í aðildarferli hjá ECR, Evrópuflokki íhaldsmanna og umbótasinna, samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar.
ECR er flokkur íhaldssamra stjórnmálaflokka á Evrópuþinginu sem vilja breyta Evrópusambandinu til að draga úr umsvifum þess. Á meðal aðildarflokka eru Lög og regla í Póllandi, Bræðralag Ítalíu, sem er flokkur Giorgiu Meloni forsætisráðherra, og Svíþjóðardemókratar. Á heimsvísu eru Repúblikanaflokkur Donalds Trump í Bandaríkjunum og Likud, flokkur Benjamins Netanyahu í Ísrael í flokkasamstarfi með ECR.
Hvorki forysta Miðflokksins né ECR-flokkurinn sjálfur hafa svarað spurningum Heimildarinnar um hver staða flokksins sé innan ECR eins og stendur.
















































Athugasemdir