Íslensk-filippeyskt tónlistarkvár með þrjár milljónir hlustenda á Spotify

Yaelokre, þjóð­laga­verk­efni hins íslensk-fil­ip­p­eyska Keaths Óskar, hefur náð gríð­ar­legum vin­sældum síð­ustu miss­eri.

Íslensk-filippeyskt tónlistarkvár með þrjár milljónir hlustenda á Spotify
Yaelokre Kemur hér fram í New Frontier Theater, Quezon-borg í Fil­ipps­eyjum, í jan­úar í fyrra. Mynd: Wikimedia Commons / greenestpotatoes

Íslensk-fil­ip­p­eyskt kvár sem semur og flytur þjóð­lagatón­list í kringum eigin sögu­heim hefur náð miklum alþjóð­legum vin­sældum síð­ustu miss­erin, að því er virð­ist án þess að flest fólk hér­lendis hafi orðið þess vart. 

Keath Ósk, sem er þekkt undir lista­manns­nafn­inu Yaelokre, er með yfir þrjár millj­ónir hlust­enda á tón­list­ar­streym­isveit­unni Spotify en vin­sælasta lag háns hefur verið spilað yfir 190 milljón sinnum þar. Hán er enn fremur með 1,6 milljón áskrif­endur á Youtube og yfir hálf milljón fylgist með háni á Instagram. 

Til sam­an­burðar er hljóm­sveitin Sigur Rós með 1,3 millj­ónir hlust­enda á mán­uði á Spotify, Björk 7,4 millj­ónir og Kaleo með 13.

Rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason skrif­aði á Facebook í gær að hann hefði frétt af til­vist Keaths Óskar nýlega og lýsti yfir furðu yfir því að hægt væri að ná þessum árangri á lít­illi eyju án þess að vart hefði orðið við umfjöllun um hann.

Við færsl­una skrifar María Rut Reyn­is­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Tón­list­ar­mið­stöðvar, að þau hafi vitað af Ósk um all­nokk­urt skeið. „Sam-Kirby sem var agent Ásgeirs og var/er agent Bjarkar í Banda­ríkj­unum sign-aði hán.“

Yaelokre fór í tón­list­ar­ferða­lag á síð­asta ári um Bretland og Banda­ríkin með við­komu í ýmsum stór­borgum Evrópu. Uppselt var á alla tón­leik­ana sem voru yfir þrjá­tíu tals­ins. Þá hit­aði hán upp fyrir norsku tón­list­ar­kon­una Auroru á tón­leikum hennar í Manila, höf­uð­borg Fil­ipps­eyja, í fyrra. 

Yaelokre hefur gefið út tón­list frá því snemma árið 2024 og er með plötu­samn­ing við Uni­ver­sal. Hán hefur meðal ann­ars samið lög á Tagalog, sem hán sagði í við­tali að hán tal­aði reiprenn­andi. 

Færri lög hafa íslenskar teng­ingar en á Youtube má finna mynd­skeið sem heitir „Finndu mig í fram­tíð­inni“.

Hán hefur sagt frá því að móðir háns sé söngv­ari en Ósk er af fil­ip­p­eysku bergi brotið. Á net­inu er ekki gefið upp hvað Ósk er gam­alt né heldur hverjir for­eldrar háns eru. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár