Líf áfram oddviti en Finnur endaði þriðji

Líf Magneu­dótt­ir verð­ir áfram odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík. Stefán Páls­son varð í öðru sæti í for­vali flokks­ins en Finn­ur Ricart Andra­son, sem sótt­ist eft­ir odd­vita­sæti, hafn­aði í þriðja sæti. Met­þátt­taka var í for­val­inu.

Líf áfram oddviti en Finnur endaði þriðji

Líf Magneudóttir bar sigur úr býtum í baráttunni um oddvitasæti Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinstri grænum í Reykjavík um niðurstöðu forvals félagsins.

Metþátttaka var í forvalinu en alls greiddu 1.093 atkvæði, eða 42 prósent þeirra sem voru á kjörskrá. Kosið var um efstu þrjú sæti á sameiginlegum lista Vinstri grænna og Vors til vinstri fyrir kosningarnar í vor.

Líf hlaut 496 atkvæði í 1. sæti og tryggði sér þannig efsta sætið. Finnur Ricart Andrason, sem einnig sóttist eftir oddvitasætinu, hafnaði í þriðja sæti. Hann hlaut 644 atkvæði í 1.–3. sæti.

Stefán Pálsson, sem sóttist eftir öðru sæti, náði því markmiði og varð í öðru sæti með 549 atkvæði í 1.–2. sæti.

Þrjú atkvæði voru auð og eitt ógilt.

Fram kemur í tilkynningunni að skipuð verði sameiginleg kjörnefnd Vinstri grænna í Reykjavík og Vors til vinstri sem muni móta tillögu að sameiginlegum framboðslista félaganna til borgarstjórnar í vor.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár