Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins

Lilja Dögg Al­freðs­dótt­ir var í dag kjör­in nýr formað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hún er fyrsta kon­an sem er kjör­in til for­mennsku í elsta stjórn­mála­flokki lands­ins.

Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins

Lilja Dögg Alfreðsdóttir var í dag kjörin formaður Framsóknarflokksins á landsþingi flokksins. Hún hlaut fleiri atkvæði en mótframbjóðandi hennar, Ingibjörg Isaksen þingmaður, sem einnig sóttist eftir embættinu.

Lilja hlaut 58 prósent greiddra atkvæða. 

Lilja er fyrsta konan sem er kjörin til formennsku í Framsóknarflokknum, elsta starfandi stjórnmálaflokki landsins. Kosningin markar því tímamót í sögu flokksins.

Fráfarandi formaður, Sigurður Ingi Jóhannsson, lét af embætti samhliða formannskjörinu. Hann tók við forystu flokksins árið 2016 í kjölfar afhjúpana tengdum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Panamaskjölunum. Þar komu fram upplýsingar um aflandstengingar Sigmundar Davíðs, sem þá gegndi formennsku og embætti forsætisráðherra.

Sigurður Ingi hafði gegnt formennsku frá þeim tíma og stýrt flokknum í gegnum bæði ríkisstjórnarsamstarf og stjórnarandstöðu. Lilja Dögg var varaformaður flokksins í formannstíð Sigurðar Inga.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Þetta eru sannarlega tímamót hjá framsóknarmönnum, kona sem formaður. Einu sinni var talað um „Framsóknarmadömmur“, þ.e. þegar gárungar voru að gera grín að framsóknarmönnum. Hver man ekki eftir því þegar forustumenn Framsóknarmanna voru teiknaðir sem konur / „madömmur“ í hæðni. Steingrímur Hermannsson í peysufötum, allir sem eru orðnir miðaldra muna eftir því. Ný staða er komin upp í framsóknarflokknum, gárungarnir verða finna út úr því hvernig á að þróa „Framsóknarmadömmuna“ miðað við þessi tímamót.
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Nú skulum við rifja upp öll loforð Framsóknarflokksins frá því að slagorðablætið tók að hrjá flokkinn. Mér dettur ekki í huga að óska henni til hamingju. Það er eitthvað mikið að hjá manneskju sem dettur í hug að hrósa Ásmundi Einari Daðasyni sem er einn af óhæfustu stjórnmálamönnum síðari tíma. Miðflokkinn tek ég ekki með inn í dæmið, enda algjörlega óstjórntækur og á að setja lögbann á. Við höfum ekkert að gera með Trömpista sem eru illskeyttir illvirkjar og hugsa aldrei um þjóðarhag.
    Núna hafði Framsókn smá svigrúm til að kasta af sére slyðruorðinu. Lilja var menntamálaráðherra. Ásmundur Einar var barnamálaráðherra. Hvað gerði þetta fólk fyrir börn og unglinga. Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt.. þetta fólk gat ekki einu sinni haft úrræði fyrir börn og unglinga í vanda og dettur mér ekki annað í hug en að kenna þeim ásamt fyrri ríkisstjórn um þau ömurlegu örlög sem mörg þeirra hafa hlotið.
    Ég vona að örlög Framsóknarflokksins verði þau sömu og Vinstri Grænna og einnig örlog barnanna sem ég syrgi. Ég á við flokkinn, ekki þá sem í honum eru.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
1
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
6
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár