Meirihluti Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi borgarráðs í morgun að Þorpið 6 ehf fengi að selja áfram lóðina Hakabryggju 12 í Elliðaárvogi til félags í eigu REIR verks ehf. Þetta er í annað skiptið á um tveimur árum sem sama félag, Þorpið 6 ehf., selur lóðir sem það hefur fengið úthlutað frá Reykjavíkurborg. Í fyrra skiptið fékk Þorpið á annan milljarð í sinn vasa fyrir sölu á lóðaréttindum í Ártúnshöfða þrátt fyrir að engin uppbygging væri hafin á svæðinu. Upphæðin fyrir nýjustu viðskiptin er ekki tilgreind í erindinu sem er birt á vef Reykjavíkurborgar, og gagnrýnir oddviti Framsóknarflokks málið með sérstakri bókun.
Þá vekur athygli að meirihluti borgarstjórnar, sem samanstendur af Samfylkingu, Pírötum og Sósíalistaflokki Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna, bókar sérstaklega um málið þar sem lóðabrask er gagnrýnt. Þar kemur fram að flokkarnir vinni að aðgerðum gegn lóðabraski og nefnir meirihlutinn samstarfshóp sem hefur unnið að málinu …












































Athugasemdir (1)