Skora á fyrirtæki að hvetja til fjarvinnu út af svifryksmengun

Mik­il svifryks­meng­un er í borg­inni og við­bú­ið að svo haldi áfram á morg­un. Við­kvæm­ir, aldr­að­ir og börn ættu að forð­ast úti­vist í lengri tíma.

Skora á fyrirtæki að hvetja til fjarvinnu út af svifryksmengun
Svifryk Gyllt þoka svifryksins liggur yfir borginni. Mynd: Golli

Reykjavíkurborg skorar á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu á svifryksdögum sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er, en styrkur svifryks í borginni mældist hár samkvæmt loftgæðamælistöðvum borgarinnar í morgun. Útlit er fyrir óbreytt veður á morgun, og viðbúið að mengunin haldist samskonar og í dag.

Þetta kemur fram í viðvörun frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Þar segir að styrkur svifryks (PM10) hafi mælst hár á loftgæðamælistöðum í borginni í morgun. Uppruni ryksins er frá umferð en þar sem götur eru þurrar og hægur vindur þyrlast það frekar upp og helst á lofti.

Klukkan 12.00 var gildið fyrir PM10 93,4 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg en til samanburðar má benda á að sólarhringsheilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Þá segir að götur hafi verið rykbundnar aðfaranótt miðvikudags en vegna aðstæðna nægir rykbindingin ekki til að halda mengun innan marka. Rykbinding er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu að því er greint er frá í tilkynningu.

Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er, til dæmis geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Skorað er á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu á svifryksdögum sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JS
    Jónína Sigurgeirsdóttir skrifaði
    Það er skrýtið að sjá og heyra umfjöllun um að svifriksmengun sé aðallega vegna notkunar nagladekkja. Ég var á ferð um síðustu helgi og þessi gyllta, brúnleita mengunarmóða fylgdi okkur langleiðina frá Mosfellsbæ og austur fyrir Kirkjubæjarklaustur. Augljóst er að flestir loftgæðamælar eru í þéttbýlinu, (Reykjavík, Akureyri) og þar er mæld ótæpileg mengun, en mengunin var ekkert minni utan þéttbýlisins. Ég trúi ekki að nagladekk hafi megináhrif á mengun upp úr farvegi Skaftár og Kúðafljóts fyrir Austan. Auk þess að hugsa til nagladekkja, langar mig að kenna um þetta eldgosum, öskufalli, jökulhlaupum og langvarandi þurrkatíð. Með kveðju, Jónína Sigurgeirsdóttir.
    0
  • Sigurður Einarsson skrifaði
    Stærsta vandamálið við svifryksmengun í Reykjavík er notkun nagladekkja á bílum. Betra er að ráðast beint að vandamálinu; það þarf bæði að reyna að minnka notkun slíkra dekkja, og auðvitað líka minnka notkun einkabílsins. Þetta væri t.d. hægt að gera með hærri skattlagningu á nagladekk, þar sem buddan ræður mestu um hegðun fólks.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár