Óttast kjarnorkustríð nú þegar síðasti kjarnavopnasamningurinn er útrunninn

Síð­asti samn­ing­ur­inn um tak­mörk­un kjarna­vopna rann út á mið­nætti. Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti tók ekki und­ir til­lögu Rúss­lands­for­seta að fram­lengja samn­ing­inn um eitt ár.

Óttast kjarnorkustríð nú þegar síðasti kjarnavopnasamningurinn er útrunninn
Búið Samningurinn, Nýtt START, var síðasti samningurinn á milli Bandaríkjanna og Rússlands sem takmarkaði kjarnavopn hvors ríkis og fól í sér gagnkvæmt eftirlit með vopnunum. Mynd: Kremlin

Japanir sem lifðu af kjarnorkuárásirnar óttast að heimurinn stefni í átt að kjarnorkustríði nú þegar síðasti vopnaeftirlitssamningur Bandaríkjanna og Rússlands er runninn út.

Nýi START-samningurinn rann út á miðnætti í nótt, 5. febrúar, eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fylgdi ekki eftir tillögu Vladimirs Pútíns, starfsbróður síns í Rússlandi, um að framlengja takmarkanir á kjarnaoddum í samningnum um eitt ár.

Terumi Tanaka, annar formaður Nihon Hidankyo, samtaka þeirra sem lifðu af kjarnorkuárásir Bandaríkjanna á Hiroshima og Nagasaki árið 1945, sagði að heiminum hefði mistekist að sjá hversu brýnt málið væri.

Þessi friðarsinnuðu grasrótarsamtök hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 2024.

„Miðað við núverandi ástand hef ég á tilfinningunni að innan ekki of langs tíma munum við í raun heyja kjarnorkustríð og stefna í átt að tortímingu,“ sagði Tanaka á blaðamannafundi sem haldinn var með öðrum japönskum baráttumönnum.

Hinn 93 ára gamli Tanaka sagðist óttast að borgarar kjarnorkuvopnaðra þjóða myndu ef til …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Viðskipti með dulritunargjaldmiðla hafa alltaf verið áhættusöm, en með stefnu Nelson Frye hefur þetta verið hreint út sagt opinberun. Upphafleg fjárfesting mín hefur vaxið verulega í $422.000 og ég hef þegar gert mína fyrstu arðbæru úttekt. Ég mæli eindregið með að hafa samband við hann á Telegrams (NildaSGNL) ef þú ert að leita að árangri í dulritunarviðskiptum.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
3
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
2
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu