Fimm fyrirtæki ábyrg fyrir fjörutíu prósentum af heildarlosun Íslands

Ál- og kís­il­ver­in ásamt Icelanda­ir eru stærstu losend­ur gróð­ur­húsaloft­teg­unda á Ís­landi. Tæp fjöru­tíu pró­sent af heild­ar­los­un án land­notk­un­ar má rekja til fram­leiðslu málma. Á al­þjóða­vísu bera 32 fyr­ir­tæki ábyrgð á helm­ingi allr­ar los­un­ar heims­ins.

Fimm fyrirtæki ábyrg fyrir fjörutíu prósentum af heildarlosun Íslands

Alcoa Fjarðaál, Norðurál, Icelandair, Elkem og Rio Tinto Alcan eru þau fyrirtæki sem losa mest af gróðurhúsalofttegundum á Íslandi, eða samanlagt 2,1 milljón tonn af koldíoxíðígildum, eða CO2-íg.

Fyrirtækin eru öll innan ETS-kerfisins, viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Umhverfis- og orkustofnun fer með umsjón kerfisins hér á landi og heldur utan um losun fyrirtækjanna. Fyrir utan Ísland taka Noregur, Liechtenstein og auðvitað aðildaríki ESB þátt.

Ál- og kísilverin eru í fimm af sex efstu sætunum en í hópinn bætist PCC Bakki sem lagðist að mestu leyti af í fyrra. Þegar litið er til heildarlosunar Íslands án landnotkunar fyrir árið 2024 var hún 4,8 milljón tonn af CO2-íg en ál- og kísilverin fimm stóðu á bak við tæp 40 prósent af þeirri losun. Hlutdeild Icelandair er ekki tekin með hér þar sem alþjóðaflug reiknast ekki til heildarlosunar Íslands.

Alcoa …
Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Við eigum góða möguleika á að snúa þessu við: Með aukinni skógrækt gætum við bundið mikið af koltvísýringi. Barrskógar binda nálægt 8-10 tonn af þessu efni og breyta í vatn og súrefni.
    0
  • Geir Gudmundsson skrifaði
    Þarna hefur nú eitthvað skolast til því skv. loftslagsbókhaldi Íslands sem Umhverfis- og orkustofun haldur utan um, þá er losun frá staðbundum iðnaði 1,9 milljón tonn, en ekki 2,1 milljón tonn.
    https://ust.is/loft/losun-grodurhusalofttegunda/bradabirgdatolur-um-losun-grodurhusalofttegunda-2024/
    Svo var losun íslenskra flugfélag innan ETS-kerfis ESB um 636 þús tonn, en við bætist svo losun innan Bretlands og Sviss, sem bæði reka eigið ETS kerfi, sem er beintengt því sem gildir innan EES.
    Þannig var losun frá flugi Icelandair 445 þús tonn innan ESB-ETS, en 492 þús tonn samtals þegar losun Icelandair frá Bretland og Sviss eru tekin með. Icelandair losar svo yfir tæplega 1,2 milljón tonn CO2 árlega fyrir alla sína starfsemi, sem slagar upp í losun frá stóriðjunni. Eitt skipafélag sem skráð er á Íslandi, Eimskip, losar svo 280 þús tonn, þar af tæp 100 þús tonn sem falla undir ETS kerfið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Jöklar Íslands kanarífuglar í kolanámunni
Viðtal

Jökl­ar Ís­lands kanarí­fugl­ar í kola­námunni

„Ís­land er í ein­stakri stöðu til að leiða lausn­irn­ar með því að breyta vel­gengni sinni á sviði end­ur­nýj­an­legr­ar orku yf­ir í al­þjóð­lega ábyrgð,“ seg­ir Tzeporah Berm­an, stofn­andi Fossil Fu­el Non-Proli­ferati­on Treaty Initiati­ve. Hún heim­sótti land­ið í fe­brú­ar til að hvetja yf­ir­völd til þátt­töku að sátt­mála sem bind­ur enda á út­breiðslu jarð­efna­eldsneyt­is.
Parísarsamningur í tíu ár: Átök uppbyggingar og niðurrifs
Úttekt

Par­ís­ar­samn­ing­ur í tíu ár: Átök upp­bygg­ing­ar og nið­urrifs

„Ef það hefði ekki náðst ein­ing í Par­ís þá vær­um við á miklu verri stað en við er­um í dag,“ seg­ir Hall­dór Þor­geirs­son, formað­ur Lofts­lags­ráðs, um Par­ís­ar­samn­ing­inn. Nú í des­em­ber var ára­tug­ur frá sam­þykkt­um samn­ings­ins og stefn­um við á hækk­un með­al­hita um 2,5 °C í stað 4 °C. Heim­ild­in ræddi við sér­fræð­inga um áhrif og fram­tíð samn­ings­ins í heimi þar sem öfl upp­bygg­ing­ar og nið­urrifs mæt­ast.

Mest lesið

„Fólk er hrætt”
1
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.
Tæknifrjóvgar býflugur fyrir austan
5
Viðtal

Tækni­frjóvg­ar bý­flug­ur fyr­ir aust­an

Sæ­unn Vig­dís Sig­valda­dótt­ir tækni­frjóvg­ar bý­flug­ur aust­ur í Hall­ormstaða­skógi. Hún fór til Banda­ríkj­anna síð­ast­lið­ið sum­ar til að læra að gera slíkt og gekk nám­ið það vel að henni var boð­ið starf við það í kjöl­far­ið vest­an­hafs. Hún þáði þó ekki þá vinnu að sinni, held­ur vill ein­beita sér að því að styrkja ís­lenska bý­flugna­stofn­inn sem hún seg­ir að sé mjög ólík­ur öðr­um stofn­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
3
Viðtal

„Það hent­ar þeim ekki að al­menn­ing­ur í land­inu vakni“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk og Mið­flokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nig­el Fara­ge. Segi þjóð­in „já“ geti Ís­land orð­ið að­ild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verð­ur svar­ið komi það til kasta Al­þing­is að draga um­sókn­ina frá 2009 til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár