Parísarsamningur í tíu ár: Átök uppbyggingar og niðurrifs

„Ef það hefði ekki náðst ein­ing í París þá værum við á miklu verri stað en við erum í dag,“ segir Halldór Þor­geirs­son, for­maður Lofts­lags­ráðs, um Par­ís­ar­samn­ing­inn. Nú í des­em­ber var ára­tugur frá sam­þykktum samn­ings­ins og stefnum við á hækkun með­al­hita um 2,5 °C í stað 4 °C. Heim­ildin ræddi við sér­fræð­inga um áhrif og fram­tíð samn­ings­ins í heimi þar sem öfl upp­bygg­ingar og nið­ur­rifs mæt­ast.

Parísarsamningur í tíu ár: Átök uppbyggingar og niðurrifs
Öflin „Ef maður ætlar að reyna að kjarna stöð­una í dag. Þá eru þetta átök milli nið­ur­rifsafla og upp­bygg­ing­arafla,“ segir Halldór Þor­geirs­son. Mynd: Golli

„Ég fagna því að náðst hefur sögu­legt og metn­að­ar­fullt sam­komu­lag í lofts­lags­málum á Par­ís­ar­fund­inum og við munum leggja okkar af mörkum bæði hér heima og við að miðla þekk­ingu okkar og reynslu til ann­arra þjóða,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þegar aðild­ar­ríkjum Sam­ein­uðu þjóð­anna tókst að semja um Par­ís­ar­samn­ing­inn. Hann sótti ráð­stefn­una sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands þegar hann var for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þann 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn voru tíu ár liðin frá því að sam­komu­lagi um Par­ís­ar­samn­ing­inn var náð á COP21, lofts­lags­ráð­stefnu SÞ. Á loka­degi ráð­stefn­unnar brut­ust út gíf­ur­leg fagn­að­ar­læti, fund­ar­gestir föðm­uð­ust og felldu tár þegar ljóst var að þessi sögu­legi samn­ingur væri í höfn. „Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn er stór­kost­legur sigur fyrir fólk og plánetu okkar,“ sagði Ban Ki-moon, þáver­andi aðal­rit­ari SÞ.

Opnað var fyrir und­ir­skriftir um samn­ing­inn á degi jarðar í apríl 2016 og sam­þykktu 194 aðild­ar­ríki ásamt Evr­ópu­sam­band­inu samn­ing­inn. Íran, Líbía og Jemen …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Fín samantekt um stöðu loftslagsmála hérlendis og á heimsvísu. Mjög vel valdir viðmælendur, öll mjög góð. En Halldór stendur uppúr, hann býr að einstakri reynslu og glöggskyggni á loftslagsmálin. Því miður er undirbúningur og skipulagning orkuskipta og annarra loftslagsaðgerða hér langt á eftir nágrannalöndum okkar á flestum sviðum, t.d. Skandinavíu. Skandínavíu löndin eru hér í allra fremstu röð í heiminum og ráðgjöf og útflutningur tækni er snýr að orkuskiptum og loftslagsvandanum er ein meginstoð efnahags Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands. Þar eru löndin ljósárum á undan okkur.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár