Neitar sök og ber fyrir sig minnisleysi á sama tíma

Helgi Bjartur Þor­varð­ar­son hefur verið ákærður fyrir að nauðga tíu ára gömlum dreng eftir að hafa brot­ist inn á heim­ilið. Hann neitar sök og seg­ist ekki fær um að brjóta af sér með þeim hætti sem hann er ákærður fyrir.

Helgi Bjartur Þorvarðarson hefur unnið sem fasteignasali auk þess sem hann var í stjórn BHM þegar hann braut af sér. Hann er ekki lengur í stjórn svo því sé haldið til haga. Hið meinta brot átti sér stað í Hafnarfirði.
Helgi Bjartur Þor­varð­ar­son hefur unnið sem fast­eigna­sali auk þess sem hann var í stjórn BHM þegar hann braut af sér. Hann er ekki lengur í stjórn svo því sé haldið til haga. Hið meinta brot átti sér stað í Hafn­ar­firði. Mynd: Golli

„Ég hef lengi velt því fyrir mér hvort ég eigi yfir höfuð að stíga fram með ein­hver orð í þessu máli. Ég geri það nú af þeirri ein­földu ástæðu að þögn mín hefur skapað rými fyrir þá ályktun að ég hafi vís­vit­andi framið ólýs­an­legt brot gegn barni,“ segir í upp­hafi yfir­lýs­ingar Helga Bjarts Þor­varð­ar­sonar, sem er ákærður fyrir að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á tíu ára gömlum dreng í Hafn­ar­firði í sept­em­ber á síð­asta ári. Helgi Bjartur sendi frá sér und­ir­rit­aða yfir­lýs­ingu í dag eftir að hann var nafn­greindur í fjöl­miðlum um helg­ina og ber af sér allar sakir þrátt fyrir að játa í sömu yfir­lýs­ingu að hann muni fátt hvað gerð­ist, enda í „blakkáti“ umrædda nótt. 

Neitar sök en man fátt

„Umrætt kvöld féll ég á bind­indi mínu og var um nótt­ina kom­inn í svo­kallað blackout-ástand og virð­ist ekki hafa verið með sjálfum mér enda fannst ég sof­andi …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnfreð Jensson skrifaði
    Í blackout-ástandi og ætti ekki geta gert það sem ég er sakaður um. Hvernig í fjáranum fannst lífsíni af þér, drullusokkur á barninu???
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár