„Þetta snýst sem sagt um að gera íslenskar býflugnadrottningar sterkari, afkastameiri og vinnusamari, til að þær gefi af sér meira hunang. Ég er búin að vera býbóndi síðan árið 2023, er sem sagt frekar ný í býheiminum. Ég er mikið í Englandi að kíkja í bú þar og hef séð að það er mjög mikill munur á hvernig flugurnar eru þar miðað við hér á landi. Ég geri mér grein fyrir að það er ekki alveg hægt að bera þetta saman, þar úti er annað veðurfar og aðrar tegundir af flugum, en ég vil sjá meira varp og meira að gerast, vil huga að genunum og hvernig við pörum flugurnar saman.“ segir Sæunn full af eldmóði.

Sæunn segir að ræktunin gangi ágætlega og að það sé gott að vita af atvinnutilboðinu vestanhafs sem hún fékk eftir nám sitt síðastliðið sumar. Hún segist hafa prufað að tæknifrjóvga fyrir austan eftir heimkomuna …

















































Athugasemdir