Vilja einfalda lífið

Þrjár vin­konur norðan heiða eru vel á veg komnar með hug­mynd um að hanna flíkur sem gagn­ast börnum og fólki með skynúr­vinnslu­vanda. Þær hafa stofnað fyr­ir­tækið Skynró og fengu nýlega styrk sem hjálpar þeim að hefj­ast handa hvað hönn­un­ina varðar. Hugmynd þeirra hefur vakið mikla athygli í sam­fé­lag­inu norðan heiða og segj­ast þær stöllur vilja ein­falda lífið fyrir fólk því það sé nú þegar nógu flókið.

Vilja einfalda lífið

Húsvísku vin­kon­urnar Sólveig Ósk Guð­munds­dóttir leik­skóla­kenn­ari, Júlía Margrét Birg­is­dóttir stuðn­ings­full­trúi og Sonja Finns­dóttir iðju­þjálfi eru þær sem mynda teymið í kringum Skynró. Sólveig og Júlía eru báðar með ADHD og eiga einnig börn með ADHD og ein­hverfu og hafa því verið að eiga við skynúr­vinnslu­vanda nán­ast allt sitt líf. Skil­grein­ing á skynúr­vinnslu­vanda (e. Sensory Processing Disorder) er þegar skyn­trufl­anir eru farnar að hafa áhrif á dag­legt líf fólks. Skynúr­vinnslu­vandi getur staðið einn og sér eða verið fylgi­fiskur ann­arra rask­ana, svo sem ADHD, ein­hverfu og kvíða, svo dæmi séu tekin. 

„Ég er iðju­þjálfi og er sú sem bætt­ist síð­ust við teymið. Júlía og Solla stofn­uðu þetta, þær eru orðnar sjó­aðar í því að finna lausnir við þeim trufl­unum sem tengj­ast þessu. Þær tóku í vor þátt í Krubb, sem er hug­mynda­hrað­hlaup á Húsavík og unnu þar fyrstu verð­laun fyrir hug­mynd sína um að búa til hvers­dags­fatnað fyrir börn með skynúr­lausn­ar­vanda. …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þetta finnst mér mjög áhugavert og vona svo innilega að gangi vel hjá þeim. Ég mun fylgjast spenntur með. Frábær hugmynd og framtak, skynúrvinnsla er flókinn og þreytandi hlutur fyrir fólk að lifa með fyrir þá sem eru hátt stilltir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár