Sumarið 2006 urðu mikil þáttaskil í lífinu þegar fjölskylda mín flutti til Hornafjarðar þar sem ég hef síðan alið manninn. Eftir á að hyggja gerðist þá þrennt eiginlega samtímis: Í fyrsta lagi hafði ég nýhafið mínar fyrstu eiginlegu rannsóknir á villtu, náttúrulegu landslagi á Íslandi sem leiddu til töluverðra áherslubreytinga í fræðastörfum mínum, í öðru lagi eignaðist ég fyrstu alvöru stafrænu ljósmyndavélina ásamt ágætu safni af linsum og í þriðja lagi var ég nú kominn með greiðan aðgang að afar fagurri og fjölbreyttri náttúru, svo að segja í bakgarði mínum. Á næstu misserum má segja að ég hafi „endurfæðst“ sem ljóslistamaður og þá hófst um leið ákveðin, langtíma keðjuverkun eða ferli sem umbreytti smám saman rannsóknum mínum, myndatökum og í raun lífinu öllu.
Það sem framar öllu hnýtti þetta allt saman voru jöklarnir – þá þekkti ég lítið sem ekkert áður en ég settist að á Hornafirði og þeir náðu …



























































Athugasemdir