Einn látinn skammt frá Þrastarlundi

Al­var­legt um­ferð­ar­slys milli Sel­foss og Þrast­ar­lunds.

Einn látinn skammt frá Þrastarlundi

Einn er látinn eftir alvarlegt umferðarslys á Biskuptstungnabraut, sunnan við Þrastarlund, upp úr klukkan hálf tvö í dag. Þetta er fyrsta banaslysið í umferðinni í ár.

Um var að ræða árekstur tveggja bifreiða og þrír einstaklingar voru í bifreiðunum. Tveir voru fluttir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands en ökumaður annarrar bifreiðarinnar var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Ásamt lögreglu voru sjúkrabifreiðar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Brunavarnir Árnessýslu og þyrla Landhelgisgæslu boðuð á vettvang en þyrla afturkölluð skömmu síðar. Jafnframt var Rannsóknarnefnd samgönguslysa boðuð. 

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn slyssins og ekki verða gefnar frekari upplýsingar að sinni.

Fyrsta banaslysið í umferðinni í fyrra varð 21. febrúar, en nú á það sér stað á þriðja degi ársins. Í fyrra létust tíu í umferðinni.

Uppfært: Maðurinn sem lést í slysinu er myndlistamaðurinn Goddur, Guðmundur Oddur Magnússon. Hann var stjötugur að aldri og var þekktur sem helsti listgagnrýnandi landsins.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
3
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Um­deild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Sam­kvæmt lóða­leigu­samn­ingi hef­ur fyr­ir­tæk­ið Reykja­nes Aur­ora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra radíus við Reykja­nes­vita þrátt fyr­ir að leigja að­eins hluta af því landi. Eig­and­inn seg­ir að reynt hafi ver­ið á gjald­heimt­una fyr­ir dómi og hún úr­skurð­uð hon­um í vil. „Þetta er bú­ið að vera vand­ræða­mál,“ seg­ir Kjart­an Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæj­ar.
Langþráður draumur um búskap rættist
6
Innlent

Lang­þráð­ur draum­ur um bú­skap rætt­ist

Par­ið Víf­ill Ei­ríks­son og Al­ej­andra Soto Her­nández voru orð­in þreytt á borg­ar­líf­inu í Reykja­vík og höfðu auga­stað á bú­skap á lands­byggð­inni. Eft­ir stutta íhug­un festu þau kaup á bæn­um Syðra-Holti í Svarf­að­ar­dal ár­ið 2021 og fluttu þang­að ásamt for­eldr­um Víf­ils, þeim Ei­ríki Gunn­ars­syni og In­ger Steins­son og syst­ur hans, Ilmi Ei­ríks­dótt­ur. Þar rækta þau græn­meti á líf­ræn­an máta und­ir nafn­inu „Yrkja Svarf­að­ar­dal” og stefna á sauða­mjólk­ur­fram­leiðslu á næstu miss­er­um.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár