Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið eftir veikindaleyfi

Ekki er ljóst hvort Guð­mund­ur Ingi Krist­ins­son snúi aft­ur til starfa eft­ir veik­inda­leyfı, en hann er á leið í hjarta­að­gerð og óvíst hversu langa end­ur­hæf­ingu hann þarf, að sögn Ingu Sæ­land.

Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið eftir veikindaleyfi
Frá vegna veikinda Guðmundur Ingi hefur verið frá vegna veikinda undanfarna daga. Mynd: Golli

Ekki er víst að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, snúi aftur til starfa í ráðuneytinu að loknu veikindaleyfi. Guðmundur Ingi er á leið í hjartaaðgerð.

Þetta kom fram í Silfrinu á RÚV í kvöld, þar sem Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, tók þátt í umræðum formanna flokka á þingi. Sagði hún að óljóst væri hvernig framhaldið yrði eftir aðgerðina. „Það veit enginn hvernig það fer, einstaklingar þurfa að fara í endurhæfingu, mislanga, og annað slíkt eftir slíka aðgerð,“ sagði Inga Sæland orðrétt.

Guðmundur Ingi tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra í mars síðastliðnum, þegar Ásthildur Lóa Þórsdóttir sagði af sér. Þegar greint var frá því að Guðmundur Ingi færi í veikindaleyfi var sagt að hann myndi snúa aftur til starfa að leyfinu loknu.

Óljóst er hvenær eða hvort ákvörðun verður tekin um varanlega lausn í ráðuneytinu, en málið ræðst að sögn Ingu Sæland af bataferli ráðherrans eftir aðgerðina. …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár