Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið eftir veikindaleyfi

Ekki er ljóst hvort Guðmundur Ingi Kristinsson snúi aftur til starfa eftir veik­inda­leyfı, en hann er á leið í hjarta­aðgerð og óvíst hversu langa endur­hæfingu hann þarf, að sögn Ingu Sæland.

Frá vegna veikinda
Frá vegna veik­inda Guð­mundur Ingi hefur verið frá vegna veik­inda und­an­farna daga. Mynd: Golli

Ekki er víst að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamála­ráðherra, snúi aftur til starfa í ráðuneytinu að loknu veikinda­leyfi. Guðmundur Ingi er á leið í hjarta­aðgerð.

Þetta kom fram í Silfrinu á RÚV í kvöld, þar sem Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, tók þátt í umræðum formanna flokka á þingi. Sagði hún að óljóst væri hvernig fram­haldið yrði eftir aðgerðina. „Það veit enginn hvernig það fer, einstaklingar þurfa að fara í endur­hæfingu, mislanga, og annað slíkt eftir slíka aðgerð,“ sagði Inga Sæland orðrétt.

Guðmundur Ingi tók við embætti mennta- og barnamála­ráðherra í mars síðastliðnum, þegar Ásthildur Lóa Þórs­dóttir sagði af sér. Þegar greint var frá því að Guðmundur Ingi færi í veikinda­leyfi var sagt að hann myndi snúa aftur til starfa að leyfinu loknu.

Óljóst er hvenær eða hvort ákvörðun verður tekin um varanlega lausn í ráðuneytinu, en málið ræðst að sögn Ingu Sæland af bataferli …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár