Af hvítum bjargvættum

Höfundarnir
Höf­und­arnir Þórunn Rakel Gylfa­dóttir og Simon Okoth Aora, höf­undar Mzungu.
Bók

Mzungu

Höfundur Þórunn Rakel Gylfadóttir, Simon Okoth Aora
Angústura
351 blaðsíða
Niðurstaða:

Mzungu er afhjúpandi og krassandi saga sem mun eflaust vekja mikla athygli sökum umfjöllunarefnisins. Hið keníska sjónarhorn nýtur sín vel og er bráðnauðsynlegt fyrir söguna en höfundar hefðu mátt gefa sig skáldskapnum á vald í meira mæli.

Gefðu umsögn

Mzungu eftir Þórunni Rakel Gylfa­dóttur, höfund bókarinnar Akam, ég og Annika, og Simon Okoth Aora, kom eins og stormsveipur inn í íslenska jóla­bókaflóðið, klædd æpandi, appelsínu­gulri kápu. Þar er fjallað um Huldu, íslenska konu sem heldur til Kenía til að starfa á munaðar­leysingja­hæli hins íslenska Skúla, fyrrum fíkils sem hefur snúið við blaðinu. Ásamt Huldu á ferða­laginu eru Dagur, 18 ára vinur hennar, og Ásta, kona á miðjum aldri sem Hulda þekkir lítið. Snemma kemur í ljós að á munaðar­leysingja­hælinu er víða pottur brotinn. Engin leynd hvílir yfir þeirri staðreynd að sagan byggist á raun­verulegri reynslu Þórunnar Rakelar, sem byggir persónuna Huldu á sjálfri sér. Eðlilega hefur krassandi efni bókarinnar vakið viðbrögð á meðal almennings, enda margir Íslendingar sem kannast við sögu­sviðið og persónurnar.

Barnalegir bjargvættir

Frásögnin hefst strax á flug­vellinum og endar þegar ferða­laginu lýkur um þremur vikum síðar. Línuleg frásögnin flakkar milli þriggja sjónar­horna. Aðal­sögumaður er …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Er raunveruleikinn þá Ekki sagna bestur? Skrýtið að hengja sig á formið en skilja frá innihaldið sem umbúðir einar. Ólafur Halldórsson, ættingjar hans og meðreiðarsveinar eru ekki bjargvættir né sjálfstætt starfandi góðgerðasamtök. Óli hefur aldrei unnið fyrir góðan málstað né heldur verið starfsmaður á almennum vinnumarkaði. Hann býr og hefur búið hjá mömmu sinni í áratugi ásamt pakistanstri eiginkonu og ættleiddi svo með þeim einn dreng frá Afríku til Íslands. Hann hefur lifað á bótakröfum til íslenska ríkisins og á velferðar þjónustu Íslands allt sitt líf ásamt því aukalega betli við hælisleitendur sem koma frá fátækustu löndum heims hingað til að vinna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár