Saga í lausaletri: að raða heiminum saman á ný

Lausa­letur er ljóð­ræn, djúp­stæð og heill­andi saga.

Saga í lausaletri: að raða heiminum saman á ný
Þórdís Helga­dóttir, rit­höf­undur. Mynd: Forlagið
Bók

Lausa­letur

Höfundur Þórdís Helgadóttir
Mál og menning
311 blaðsíða
Niðurstaða:

Lausaletur er ljóðræn, djúpstæð og heillandi saga sem sameinar sögu prentlistarinnar, heimsendahugleiðingar og mennsku. Frásagnaraðferðin getur reynst krefjandi en gerir bókina að heildstæðu verki um það sem við reynum að varðveita – og þess sem óhjákvæmilega gleymist.

Gefðu umsögn

Í Lausa­letri leiðir Þórdís Helga­dóttir les­endur inn á prent­safn í óræðri evr­ópskri borg þar sem kyrrðin er þykk í ákafri bið en undir niðri bær­ast lang­anir og eft­ir­sjá. Þar vinna Björn, hand­lag­inn ungur glaum­gosi, og Írena, smart klædd mið­aldra kona, öllum öðrum starfs­mönnum hefur verið sagt upp vegna heims­far­ald­urs. Þau spjalla eins og sam­starfs­fólk spjallar, drekka óhóf­legt magn af kaffi, dytta að vélum, end­ur­raða í safn­búð­inni og bíða gesta sem koma ekki ef frá er tal­inn kött­ur­inn Sharon sem er dag­legur aufúsu­gestur. Þráin eftir venju og ótt­inn við hið óþekkta byggja upp rólega spennu og hættu sem húkir yfir lygnum vötnum. Svo kemur óvæntur gestur.

Hinn persónulegi heimsendir

Það virð­ist vera heimsenda­þema í jóla­bóka­flóð­inu í ár. Þar má nefna Sólgos eftir Arndísi Þór­ar­ins­dóttur, Eilífð­ar­vetur eftir Emil Hjörvar Petersen, Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafs­dóttur og Síðustu dagar skelja­skrímsl­is­ins eftir Stein­unni G. Helga­dóttur. Hér ber við kunn­ug­lega …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár