„Enginn alþjóðaflugvöllur með verri tengingu við áfangastað“

Í mörgum til­fellum er ódýr­ara fyrir lands­menn að keyra á bílum sínum upp á flug­völl og leggja frekar en að taka Flug­rút­una. Nýleg rann­sókn sýndi að aðeins hálft til eitt pró­sent þjóð­ar­innar nýti sér Strætó til að fara upp á flug­völl. Borg­ar­fræð­ingnum Birni Teits­syni þykja sam­göngur til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli vera þjóð­ar­skömm en leið­sögu­maður líkti nýlegu ferða­lagi sínu með Flug­rút­unni við gripa­flutn­inga.

„Ég hef farið til Kathmandu í Nepal og það voru betri sam­göngur frá flug­vell­inum þar. Þetta er þjóð­ar­skömm,“ segir Björn Teitsson borg­ar­fræð­ingur um sam­göng­urnar á milli Kefla­vík­ur­flug­vallar og höf­uð­borg­ar­innar. „Þetta er ekki svona í neinu öðru landi í Evrópu eða hinum vest­ræna heimi,“ bætir hann við.

Nokkuð hefur verið rætt um sam­göngur á milli alþjóða­flug­vall­ar­ins og Reykja­víkur í kjöl­far nýlegrar rann­sóknar Þórodds Bjarna­sonar, pró­fess­ors í félags­fræði við Háskóla Íslands. Þar var meðal ann­ars leitt í ljós að yfir­gnæf­andi meiri­hluti lands­manna nýti sér einka­bíl til að kom­ast til og frá flug­vell­inum. 

Umdeilt fyrirkomulag 

Björn segir það ekki tíðkast í öðrum löndum að ferða­lagið á flug­völl­inn sé dýr­ara en utan­lands­ferðin sjálf. Á Íslandi á það sér­stak­lega við um fólk úti á landi, líkt og nýleg rann­sókn Þórodds varp­aði ljósi á. Samkvæmt nið­ur­stöðum hans fer fólk sem býr utan suð­vest­ur­horns­ins tals­vert minna til útlanda en fólk búsett þar, en …

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
    Svo ef fólk vill sækja einhvern í flug þá eru þau stæði mjög langt frá stöðinni líka. Reyndar er verið að vinna í því svæði svo það er mögulega tímabundið.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Sammála síðasta ræðumanni, þar að auki eru vindgöngin sem liggja frá flugstöðinni að bílastæði 2 eins og frystiklefi frá eihverri útgerðinni, ekki séns að fá yl í helbláa fingur eftir að hafa barist við að höggva snjóskaflinn af bílnum, tala nú ekki um ástandið á frúnni sem hangið hefur í trekk frystiganganna meðan á öllu þessu stendur.
    3
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Ég tek undir þessa grein fullum hálsi.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár