Matvælastofnun varar við eftir að barn fékk skrúfu í pylsu

SS-pyls­ur innkall­að­ar eft­ir „að­skota­hlut“ í pylsu.

Matvælastofnun varar við eftir að barn fékk skrúfu í pylsu
Skrúfan úr pylsunni Innköllun er á pylsum frá SS úr framleiðslulotu 05-273, með síðasta notkunardag 26. október. Mynd: Facebook

„Hefur einhver lent í því að fá skrúfu í pylsuna sína? Dóttir mín beit næstum í hana en tók hana bara úr og kláraði restina af pylsunni,“ sagði ung móðir í Facebook-hópnum Matartips á laugardag.

Móðirin fékk viðbrögð frá gæðastjóra SS eftir frásögn hennar. 

Nú hefur Matvælastofnun varað við „aðskotahlut“ í SS-pylsum. „Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað alla framleiðslulotuna í varúðarskyni,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar í dag.

Pylsurnar voru seldar í Bónus, Krónunni, Hagkaup, Nettó, Kjörbúðinni, Krambúðinni, 10-11, Extra, Prís, Fjarðarkaup, Melabúðinni og öðrum verslunum. Síðasti notkunar dagur er 25. október 2025 og er lotunúmer 05-273.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er nú skárra að fá skrúfu en notaðan plástur í pulsunni, eins og gerðist hérna um árið!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Veðurfræðingur á sumardaginn fyrsta: „Vorið er komið“
4
Innlent

Veð­ur­fræð­ing­ur á sum­ar­dag­inn fyrsta: „Vor­ið er kom­ið“

Ein­ar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ing­ur fagn­ar sum­ar­deg­in­um fyrsta með því að lýsa vor­ið kom­ið. Sumar­ið kem­ur hins veg­ar í skref­um. Eng­in leið er að spá fyr­ir um hvernig veðr­ið verð­ur í sum­ar, en síð­asta sum­ar var óvenju hlýtt og þar áð­ur var óvenju kalt. Hlýn­un sjáv­ar hef­ur áhrif á veð­ur­far, svo fylgj­ast þarf með breyt­ing­um á AMOC-haf­straumn­um og tala máli Ís­lend­inga á al­þjóða­vett­vangi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
1
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár