Bann við eilífðarefnum vofir yfir Evrópu

Umhverfis­stjóri ESB kynnir niður­stöður um eilífðar­efni í hennar eigin blóði.

Eilífðarefni í eldamennsku
Eilífð­ar­efni í elda­mennsku Algeng leið fyrir eilífð­ar­efni inn í lík­amann er notkun á teflon-húð­uðum pönnum sem kvarn­ast úr. Þá er best að nota ekki málm­á­höld. Mynd: Shutterstock

Umhverfis­mála­stjóri Evrópu­sambandsins sagði í dag að hún hefði greinst með „eitruð“ eilífðar­efni í líkama sínum eftir að hafa farið í skimun til að vekja athygli á heilsufars­áhættunni sem fylgir mann­gerðum mengunar­völdum.

„Borgarar verða í auknum mæli fyrir PFAS-efnum í blóði sínu. Ég er engin undan­tekning,“ sagði umhverfis­mála­stjórinn Jessika Roswall við frétta­menn og birti niður­stöður úr skimun sinni fyrir per- og pólý­flúoralkýl efnum.

„Það sýnir að ég er ekki laus við PFAS og að sum PFAS-efnanna í blóði mínu eru eitruð fyrir frjósemis­heilsu,“ sagði hún við frétta­menn í framhaldi af blaðamanna­fundi um aðgerðir Evrópu til að vernda náttúruna og berjast gegn loftslags­breytingum.

„Þetta styrkti ásetning minn um að halda áfram með vinnu okkar,“ sagði Roswall.

Teymi umhverfis­mála­stjórans sagði að hún hefði greinst með sex af þeim 13 PFAS-efnum sem skimað var fyrir, þar á meðal þrjú sem eru talin eitruð fyrir frjósemi, og í nokkrum tilfellum í hærri styrk en ráðlagt er.

Roswall fór í skimun í júlí ásamt ráðherrum víðs vegar að úr Evrópu­sambandinu til að vekja athygli á mengun af völdum PFAS, sem er hópur tilbúinna efna sem hrinda frá sér hita, vatni og olíu og eru notuð í viðloðunar­fríar pönnur, bletta­þolin teppi og margar aðrar vörur. Þar á meðal má nefna pítsu­kassa, sælgætis­umbúðir, umbúðir utan um örbylgju­popp, naglalakk, dýnu­hlífar, farsíma­skjái, skyndibita­pakkningar, regn­jakkar og fjölmargt annað sem hannað er til að hrinda frá sér fitu eða vatni.

PFAS-efni eru oft kölluð „eilífðar­efni“ þar sem þau eru afar lengi að brotna niður og eru í auknum mæli takmörkuð um allan heim vegna skaðlegra áhrifa á heilsu.

Lang­varandi útsetning, jafnvel fyrir litlu magni, hefur verið tengd við lifrar­skemmdir, hátt kólesteról, skert ónæmis­viðbrögð, lága fæðingar­þyngd og nokkrar tegundir krabba­meins.

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins áformar að leggja til á næsta ári að banna PFAS í daglegum neyslu­vörum – allt frá pítsu­kössum til fatnaðar – með undan­tekningum fyrir ákveðin svið, þar á meðal lækninga­tæki.

Framkvæmda­stjórnin vinnur einnig að lang­þráðri uppfærslu á reglum ESB um fram­leiðslu og notkun hættulegra efna – en ferlið hefur tafist.

Fyrsta endur­skoðun á textanum, sem kallast „REACH“, fékk neikvæða umsögn frá innri matsnefnd – sem bað framkvæmda­stjórnina um að styrkja tillögu sína, að sögn Roswall.

Umhverfis­samtök hafa varað við frekari töfum á uppfærslu laganna, sem hefur verið í vinnslu síðan 2022.

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    The root cause is over population! 8 billion people is too much for the planet! Humanity must shrink by 50-60% in order to survive mid- and long-term!
    -1
    • Yes, but that is only half the truth. The root cause rather too much use of earth's resources. The fact is that the wealthiest 10% of people are responsible for more than half of global carbon emissions, while the poorest 50% contribute only about 10%. This shows that overconsumption by the rich, not population size, is the main driver of pollution!
      0
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Lífhvolfið allt er meira og minna mengað af fjölda eitur- og aðskotaefna. Sú staðreynd er ein af þeim mörgu krísum sem steðja að heiminum. "Polycrisis" (fjölkrísa) er safnheitið sem þessum krísum hefur verið gefið. Útlitið er ekki gott, svo mjög vægt sé til orða tekið, fyrir lífríkið eins og þar er í dag.

    Lífinu sjálfu er vitaskuld engin hætta búin. Það heldur áfram sama hvað maðurinn gerir, en lífríkinu er gríðarleg hætta búin í þeim heimi sem mannkynið hefur búið því með vitfyrringslegu háttalagi sínu. Lífhvolfið er, að mínu mati, á hverfanda hveli í núverandi mynd. Við erum sökudólgarnir.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár