Seldu kassagerð og fengu milljarða

Fráfar­andi stjórnar­formaður Samhentra Kassa­gerðar segir það dásamlegt að geta borgað mikið til samfélagsins. Hann er sestur í helgan stein eftir feril í fisk­vinnslu en hann og einn af stofn­endum fyrir­tækisins seldu sig úr fyrir­tækinu í fyrra.

Samhentir Kassagerð
Sam­hentir Kassa­gerð Ásgeir var stærsti eig­andi félags­ins en seldi sig út úr því í fyrra og sett­ist í helgan stein. Mynd: Víkingur

Bjarni Hrafnsson var tekju­hæstur í Hafnar­firði í fyrra með tæpar 823 milljónir króna í heildar­tekjur samkvæmt Hátekju­lista Heimildarinnar.

Ásgeir Þorvarðarson var næst­tekjuhæstur í Kópavogi í fyrra með rúman milljarð í heildar­tekjur.

Saman áttu þeir hluti í Samhentum Kassagerð hf. sem þeir seldu í fyrra. Bjarni var einn af upphaf­legum stofn­endum fyrir­tækisins árið 1995 og Ásgeir fráfar­andi stjórnar­formaður þess. Í tilkynningu um kaupin kom fram að Bjarni yrði fyrir­tækinu áfram til ráðgjafar þar til í apríl í ár.

Ásgeir segist í samtali við Heimildina vera sestur í helgan stein og vera ánægður með að borga svo mikið til samfélagsins en skatt­greiðslur hans námu tæpri 231 milljón í fyrra. „Mér finnst það bara dásamlegt,“ segir hann. „Alveg dásamlegt að geta gert það.“

„Ég er búinn að vera alla ævi verk­stjóri í fisk­vinnslu

Aðspurður hvort hann sé sáttur við hvað skattarnir hans eru notaðir í segir …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Bjarni Harðarson var tekjuhæstur í Hafnarfirði í fyrra með tæpar 823 milljónir króna í heildartekjur... en skattgreiðslur hans námu tæpri 231 milljón í fyrra."
    Eftir standa um 600 milljónir! Rúmlega þriðjungur en almennir launþegar greiða 36% skatt í hæsta þrepi.
    -1
    • Helgi Hauksson skrifaði
      600 milljónir af 831 (600+231) er reyndar ≈ ¾ og skatturinn því ≈ ¼ þ.e. fjórðungur en ekki þriðjungur.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár