Tekjur skattakóngsins Þorsteins Más slaga hátt í hækkun veiðigjalda

Frá­far­andi for­stjóri Samherja var tekju­hæstur á Íslandi í fyrra með 4,7 millj­arða króna í heild­ar­tekjur. Til sam­an­burðar hefðu ný lög um veiði­gjöld hækkað álögur á útgerð­ina um 7,5 millj­arða króna í ár. Fyrr­ver­andi eig­in­kona hans var tekju­hæst í Reykja­vík með tæpa 4,6 millj­arða.

Tekjur skattakóngsins Þorsteins Más slaga hátt í hækkun veiðigjalda
Þor­steinn Már og Helga Hjónin fyrr­ver­andi tróna á toppi Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar 2024.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, frá­far­andi for­stjóri Samherja, var með heild­ar­tekjur upp á rúma 4,7 millj­arða króna í fyrra.

Megnið af tekjum hans voru fjár­magnstekjur, eða 4.624.517.005 kr., en þar að auki námu mán­að­ar­laun hans tæpum 6,7 millj­ónum króna.

Til sam­an­burðar við laun Þor­steins Más þýddu breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar á veiði­gjöldum að gjöld á útgerð­ina í heild sinni árið 2024 hefðu verið 7,5 millj­örðum króna hærri ef breyt­ing­arnar hefðu verið gengnar í gegn.

Þor­steinn Már greiddi af þessum 4,7 millj­örðum króna sam­tals 1 millj­arð króna og rúmar 52 millj­ónir í skatt. Er hann því skatta­kóngur árs­ins í fyrra þegar tekið er til­lit til bæði launa- og fjár­magnstekna eins og gert er á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar.

Rík­is­stjórnin breytti lögum um veiði­gjöld í sumar þannig að útgerðin muni fram­vegis greiða hærri veiði­gjöld en áður. Þor­steinn Már …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár