Vel­kom­inn Vladimir Donald Trump og Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti standa saman við flug­braut­ina eftir að þeir komu á her­stöð­ina Elm­end­orf-Richardson í Anchorage, Alaska, í kvöld. Pútín er í Alaska í boði Trumps í sinni fyrstu heim­sókn til Vest­ur­landa síðan hann fyr­ir­skip­aði inn­rás í Úkraínu árið 2022 sem hefur kostað tugi þús­unda manna lífið. Mynd: AFP

Pútín kominn inn úr kuldanum

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti tók á móti Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta í Alaska í kvöld. Þar ræða þeir frið, eða skipti á land­svæðum.

Vladimir Pútín býr ekki lengur við útskúfun af hálfu vest­rænna sam­fé­laga. Í kvöld tók Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á móti Rúss­lands­for­set­anum með útrétta hönd og bros á vör í Alaska, land­svæð­inu sem Banda­ríkin keyptu af Rússum árið 1867, til að finna leið­ina til að inn­sigla frið og eign­ar­hald Rússa á land­svæði Úkraínu. Á sama tíma geisar stríðið og mann­fall stendur yfir.

Leið­toga­fund­ur­inn markar enda­lok úti­lok­unar Pútíns á vest­ur­löndum og mun um leið reyna á lof­orð Banda­ríkja­for­seta um að binda enda á stríðið í Úkraínu. Á sama tíma stendur hinn vest­ræni heimur á önd­inni yfir því að leið­tog­arnir tveir gætu náð of vel saman, sem gæti leitt til þess að heims­myndin riðlist enn meira, þannig að réttur hins sterka verði ofar alþjóða­lögum.

Í skipu­lagðri atburða­rás komu Trump og Pútín hvor í sinni for­seta­þot­unni og gengu hvor til móts við annan undir gráum himni til að heilsa hvor öðrum á palli á flug­braut­inni, þar sem her­þotur flugu yfir þeim. Síðan gengu þeir saman eftir rauðum dregli að heið­ursvörðum.

Á meðan orr­ustu­þotur flugu yfir kall­aði blaða­maður heyri­lega til Pútíns: „Ætlarðu að hætta að drepa almenna borg­ara?“

„Ætlarðu að hætta að drepa almenna borg­ara?“
Blaða­maður spyr Vladimir Pútín

Hvorugur leið­tog­inn svar­aði þegar þeir stilltu sér upp við ræðupúlt sem á stóð „Alaska 2025“ áður en Pútín - sem er mjög óvenju­legt - fylgdi Trump inn í for­seta­límósínu Banda­ríkj­anna.

Fyrir rúss­neska for­set­ann markar fund­ur­inn fyrstu spor hans á vest­rænu land síðan hann fyr­ir­skip­aði inn­rás í Úkraínu í febr­úar 2022,  sem hafa kostað tugi þús­undir manna lífið.

Á rauða dregl­inumLeikræn upp­setn­ing leið­toga­fund­ar­ins hefur vakið athygli.

Viðræður hafnar

Báðir leið­togar hafa lýst vonum um árang­urs­ríkan fund. En á meðan Trump var­aði við því að hann gæti úrskurðað fund­inn mis­heppn­aðan eftir aðeins nokkrar mín­útur ef Pútín gefur ekki eftir, sögðu stjórn­völd í Kreml að þeir myndu ræða saman í að minnsta kosti sex eða sjö klukku­stundir.

Und­an­farna daga hefur Rússland náð árangri á víg­vell­inum sem gæti styrkt stöðu Pútíns í hugs­an­legum vopna­hlé­svið­ræðum, þó svo að Úkraína hafi til­kynnt á meðan Pútín var á flugi að hún hefði end­ur­heimt nokkur þorp.

Í sam­tali við blaða­menn um borð í Air Force One á leið til Anchorage virt­ist Trump von­góður. „Það er mikil virð­ing á báða bóga og ég held að eitt­hvað komi út úr þessu,“ sagði hann.

Trump hefur stað­hæft að hann muni sýna Pútín stað­festu, eftir að hafa orðið fyrir einni hörð­ustu gagn­rýni for­seta­tíðar sinnar fyrir að virð­ast und­ir­gef­inn honum á leið­toga­fundi í Helsinki árið 2018.

Hvíta húsið til­kynnti skyndi­lega á föstu­dag að Trump væri að hætta við áætlun um að hitta Pútín eins­lega og þess í stað myndi utan­rík­is­ráð­herr­ann Marco Rubio og sér­stakur sendi­herra hans Steve Witkoff vera með honum áður en hald­inn yrði vinnufundur yfir hádeg­is­mat.

Hvert orð og hver hreyf­ing verður nákvæm­lega skoðuð af evr­ópskum leið­togum og Volody­myr Zelensky, for­seta Úkraínu, sem var ekki boðið og hefur stað­ist þrýst­ing frá Trump um að gefa eftir land­svæði sem Rússland hefur her­tekið.

„Það er kom­inn tími til að binda enda á stríðið og Rússland verður að taka nauð­syn­leg skref. Við treystum á Ameríku,“ sagði Zelensky í færslu á sam­fé­lags­miðlum.

Vin­gjarn­legirDonald Trump sýnir Pútín tölu­vert meiri vin­gjarn­leika og virð­ingu en þeim vest­rænu leið­togum sem hann hefur hitt í seinni for­seta­tíð sinni.

Trump hefur kallað fund­inn „könn­un­ar­fund“ til að láta reyna á Pútín, sem hann hitti síð­ast árið 2019. Hann sagði í dag að hann væri ekki að fara til Alaska til að semja.

„Ég er hér til að fá þá að samn­inga­borð­inu,“ sagði hann um rúss­neska og úkra­ínska leið­tog­ann.

Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, sagði að Moskva myndi ekki spá fyrir um nið­ur­stöðu fund­ar­ins.

„Við gefum aldrei út neinar spár fyr­ir­fram,“ sagði Lavrov við rúss­neskt rík­is­sjón­varp eftir að hann kom til Alaska, klæddur í það sem virt­ist vera skyrta með skamm­stöfun Sov­ét­ríkj­anna rit­aða á henni með kyrill­ískum stöfum.

Trump hefur lofað að ráð­færa sig við evr­ópska leið­toga og Zelensky og segir að öll end­an­legt sam­komu­lag myndi koma fram á þrí­hliða fundi með Pútín og úkra­ínska for­set­anum til að „skipta upp“ land­svæðum.

Viðræður hafnarPútín fékk far með for­setali­mósínu Donalds Trump, að því er virð­ist án túlka.

„Alvarlegar“ afleiðingar

Trump hefur stært sig af sam­bandi sínu við Pútín, kennt for­vera sínum Joe Biden um stríðið og hafði lofað fyrir end­ur­komu sína í Hvíta húsið í jan­úar að hann gæti komið á friði innan 24 klukku­stunda.

En þrátt fyrir ítrek­aðar sím­hring­ingar til Pútíns og fund í Hvíta hús­inu 28. febr­úar þar sem Trump nið­ur­lægði Zelensky opin­ber­lega, hefur rúss­neski leið­tog­inn ekki sýnt nein merki um samn­ings­vilja.

Trump sagði að hann „myndi ganga frá“ borð­inu ef fund­ur­inn gengi ekki vel og sagði blaða­mönnum að hann „yrði ekki ánægður“ ef ekki væri hægt að tryggja vopna­hlé strax.

Við­ræð­urnar fóru fram á Elm­end­orf flug­her­svæð­inu, stærstu her­stöð Banda­ríkj­anna í Alaska. Þar er aðstaða frá tímum kalda stríðs­ins fyrir eft­ir­lit með Sov­ét­ríkj­unum sál­ugu.

Stað­setn­ing fund­ar­ins und­ir­strikar sögu­lega þýð­ingu, þar sem Banda­ríkin keyptu Alaska af Rúss­landi árið 1867 - með samn­ingi sem stjórn­völd í Moskvu hafa vitnað í til að færa rök fyrir lög­mæti landa­skipta.

Hvorugur leið­tog­inn er lík­legur til að stíga út fyrir her­stöð­ina inn í Anchorage, stærstu borg Alaska, þar sem mót­mæl­endur hafa sett upp skilti til að sýna sam­stöðu með Úkraínu.

Leið­toga­fund­ur­inn markar skörp umskipti frá nálgun vest­rænna evr­ópskra leið­toga og Bidens, sem lof­uðu að halda ekki við­ræður við Rússland um Úkraínu nema Kænu­garður væri einnig þátt­tak­andi.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár