Fór 68 sinnum í pontu vegna veiðgjalda

Halla Hrund Loga­dóttir segir að ræður sínar um veiði­gjöld eftir að mál­þóf stjórn­ar­and­stöð­unnar hófst hafi ekki verið hluti af því heldur hafi hún viljað leggja áherslu á mik­il­vægi auð­linda­gjalda.

Fór 68 sinnum í pontu vegna veiðgjalda
Halla Hrund Loga­dóttir Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks sagð­ist ekki hafa tekið þátt í mál­þófi stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Halla Hrund Loga­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, steig 68 sinnum í pontu til þess að ræða frum­varp um veiði­gjöld sem sam­þykkt var á loka­degi Alþingis 14. júlí. Hún seg­ist hafa viljað tjá sig um málið þar sem það varði hennar sér­svið og í ræðum sínum lagt áherslu á mik­il­vægi auð­linda­gjalda.

Halla Hrund skrif­aði færslu á Facebook við þing­lok þar sem hún sagð­ist ekki hafa tekið þátt í mál­þófi stjórn­ar­and­stöð­unnar vegna máls­ins. Frum­varpið var rætt í yfir 162 tíma á Alþingi og varð þar með það mál sem lengst hefur verið rætt síðan Alþingi varð að einni mál­stofu árið 1991.

„Eins og margir vita ákvað ég per­sónu­lega að taka ekki þátt í mál­þófi stjórn­ar­and­stöð­unnar,“ skrif­aði hún. „Skoðun mína á mál­inu tjáði ég hins vegar skýrt í nokkrum ræðum á þingi, á fundum og í fjöl­miðlum. Sú skoðun er í anda þess sem ég hef lengi talað fyrir í orku­mál­unum: Það er eðli­legt að nýt­ing tak­mark­aðra nátt­úru­auð­linda færi þjóð­inni arð og hann á að aukast. Þess vegna styð ég mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar um að auka ábata þjóð­ar­innar af sjáv­ar­út­vegi. Það er mik­il­vægt, og rétt áhersla sem ber að fagna.“

Flestar ræður Höllu Hrundar eftir að málþóf var boðað

Erfitt er að segja með vissu hvenær mál­þóf stjórn­ar­and­stöð­unnar til að tefja atkvæða­greiðslu um veiði­gjöld hófst en Jens Garðar Helgason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, sagði 20. júní í pontu að það væri „heilög skylda“ and­stæð­inga frum­varps­ins að standa í gegn mál­inu „í allt sumar ef til þarf“.

Fyrir það höfðu ýmsir stjórn­ar­liðar sakað stjórn­ar­and­stöð­una um mál­þóf og starfs­á­ætlun Alþingis felld úr gildi en þingi átti upp­haf­lega að fresta 13. júní. Mál­þóf­inu lauk þegar Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­seti Alþingis, lagði til að 71. grein þing­skap­ar­laga yrði beitt til að tak­marka ræðu­tíma um málið.

Halla Hrund flutti fimm ræður um veiði­gjöld á vor­þingi og 63 andsvör, sem eru styttri ræður sem mega að jafn­aði ekki vera lengri en tvær mín­útur.

Síðast fór hún í pontu vegna máls­ins 2. júlí síð­ast­lið­inn. Steig hún þá 11 sinnum í pontu, fyrst til að flytja ræðu og síðan andsvör. Fór hún síð­ast upp í andsvör kl. 21:49 eftir ræðu Nönnu Mar­grétar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Mið­flokks. Aðeins þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna stigu í pontu það kvöldið.

Þá steig hún tvisvar í pontu 30. júní í andsvör og 32 sinnum dag­ana 19. til 21. júní.

Þátttaka í umræðum sé ekki málþóf

Í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar ítrekar Halla Hrund að hún hafi ekki tekið þátt í mál­þóf­inu með þessum ræðu­höldum. „Auð­linda­mál eru þunga­vigta­mál sem hafa lang­tíma­á­hrif á sam­fé­lagið,“ segir hún. „Því er mik­il­vægt að taka þátt í þeim og koma sjón­ar­miðum á fram­færi, sér í lagi ef þau tengj­ast sér­sviði þing­manna sem er í mínu til­felli meðal ann­ars auð­linda­nýt­ing.“

„Áhersla mín var á mik­il­vægi auð­linda­gjalda“

Hún segir það eðli­legt og að hlut­verk þing­manna sé að sinna því af natni. „En allt annað er að tefja mál umfram slíkt í marga daga til þess að þau kom­ist ekki í atkvæða­greiðslu,“ segir hún. „Ég hélt fjórar til fimm stuttar ræður og tók þátt í andsvörum sem eru oft­ast 1 mín­úta, eins konar spurn­ingar og svör. Áhersla mín var á mik­il­vægi auð­linda­gjalda sem var sjón­ar­mið sem heyrð­ist minna af í þing­sal og ég hef talað um lengi í sam­hengi við orku­málin.“

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KÁB
    Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifaði
    Halla Hrund tók þátt í málþófinu en ég held hún hafi svo séð hversu bjánalegt og skemmandi þetta var og fengið bakþanka. Nú vona ég innilega að hún láti ekki teyma sig aftur í svona vitleysu enda ekki í þágu lands og þjóðar og kannski getur hún haft góð áhrif á collega sína í þessum efnum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár