Vegir sem valda banaslysum

Í Öræfunum hefur aukin umferð haft alvar­legar afleið­ingar í för með sér en inn­viðir eru ekki í sam­ræmi við mann­fjölda á svæð­inu og bílslys eru algeng. Stefnt er að því að fá sjúkra­bíl á svæðið í vetur í fyrsta skipti. Íris Ragn­ars­dóttir Pedersen og Árni Stefán Haldor­sen í björg­un­ar­sveit­inni Kára segja veg­ina vera vanda­málið. Þau hafa ekki tölu á banaslysum sem þau hafa komið að.

Vegir sem valda banaslysum
Einbreið brú yfir Virkisá Ein­breiðar brýr geta valdið slysa­hættu. Mynd: Golli

Björg­un­ar­sveit­ar­fólk hefur í áraraðir verið fyrsta við­bragð í Öræfunum en næsta sjúkra­bíl hefur verið að finna á Kirkju­bæj­ar­klaustri í um það bil 45 mín­útna fjar­lægð og síðan á Höfn í Horna­firði. Frá árinu 2023 hefur sjúkra­bíll verið starf­ræktur í Öræfunum yfir sum­ar­tím­ann. Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa hefur lagt til að heils­ársvið­bragð verði á svæð­inu. Írisi Ragn­ars­dóttur Pedersen og Árna Stefáni Haldor­sen björg­un­ar­sveit­ar­fólk og íbúum í Öræfunum þykir jákvæð þróun að fá sjúkra­bíl allt árið en segja vanda­málið vera veg­ina. 

Þrátt fyrir fyr­ir­hug­aðar úrbætur þýða þær ekki að alvar­legum slysum muni endi­lega fækka. Íris og Árni segja að það þurfi að gera veg­inn um svæðið örugg­ari, en sam­kvæmt tölum frá Vega­gerð­inni keyra um 1.850 bílar á dag að með­al­tali í Öræfunum en til sam­an­burðar var með­al­talið rúm­lega 400 bílar á dag árið 2010. „Hérna er veg­ur­inn jafn­breiður og hann var þegar hring­veg­ur­inn var gerður 1974,“ segir Íris.  

Árni segir að það …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "Vegir sem valda banaslysum"? Það þarf víða að bæta aðstæður og gera vegi öruggari en það er ekki vegurinn sem veldur slysi það er ökumaðurinn sem EKKI tekur mið af aðstæðum sem er gerandinn.
    0
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Það er átakanlegt að lesa frásagnir frá björgunarsveitinni Kára í Öræfunum um geigvænlega háa slysatíðni á Suðurlandsvegi, einkum vegna alls ófullnægjandi vega sem uppfylla enga staðla miðað við þessa miklu umferð.
    Ég á yndislegar minningar úr Öræfunum frá því ég var þar í sveit (kúreki) og sumrum unglingsáranna eyddi ég við brúarsmíði á Skeiðarársandi í Öræfunum, í þessari ægifögru sveit. Þessar fréttir af hörmulegum slysum á Suðurlandsveginum hryggja mig mjög og varpa skugga á yndislegar minningar úr sveitinni undir Öræfajökli.
    Eins og segir í viðtalinu: „Ætlum við að halda áfram að láta þetta gerast þegar vandamálið er frekar augljóst? Vegirnir eru alltof mjóir og við erum með of margar einbreiðar brýr enn þá.“ „Við fáum sjúkrabíla og það er frábært en það mun samt ekki koma í veg fyrir slysin. Vandinn er vegirnir“.
    Umferðin á Suðurlandsveginum hefur margfaldast á rúmum áratug vegna fjölgunar ferðamanna. Í dag eru taldir 1850 bílar á dag en voru 400 bílar á dag 2010. Umferðin er orðin margfalt meiri um mjóa vegina en staðlar gera ráð fyrir að vegirnir beri. Slysatíðnin er óbærilega há vegna þessa. Frá 2014-2024 létust eða slösuðust alvarlega 107 manns á Suðurlandsveginum, bara í Öræfunum. Vegirnir hafa verið nánast óbreyttir í rúma hálfa öld frá því Skeiðarársandur var brúaður.
    Ef miðað er við spár um fjölgun ferðamanna á næstu árum má vænta þess að ferðamannafjöldinn tvöfaldist á næsta rúma áratug. Ef endurnýja ætti Suðurlandsveg þannig að hann þyldi þessa umferð myndi það kosta hundruð milljarða króna. Sá gríðarlegi peningur er ekki til í dag og þeir fjármunir sem þyrfti í vegagerð til að anna þessari miklu og hröðu fjölgun ferðamanna verða aldrei til, upphæðin er þvílík.
    Eina raunhæfa og ásættanlega lausnin er að hægja á þessari öru og stjórnlausu fjölgun ferðamanna. Undanfarinn rúman áratug hefur fjölgun ferðamanna per íbúa verið 5 sinnum meiri en í nokkru öðru Norður-Evrópulandi. Innviðir landsins, vegir, fasteignamarkaður og fleiri innviðir ráða alls ekki við þessa öru fjölgun og öll þenslan og innviðaskuldir þessu tengd kyndir svo undir verðbólguna.
    Á meðan Ísland nýtur mikilla vinsælda meðal ferðamanna og gistirými virðist alltaf nægt, þá ræður afkastageta Keflavíkurflugvallar (ISAVIA) mestu um fjölda ferðamanna. ISAVIA er í eigu íslenska ríkisins. Stjórnvöld ættu því að geta haft eitthvað að segja um stækkun og afkastagetu flugvallarins. Hagnaður af rekstri flugstöðvarinnar og meira til hefur hingað til runnið í fjárfestingar til að auka afkastagetu flugvallarins. Ef hægt væri á vexti flugvallarins gæti flugstöðin skilað árlegum arði í ríkiskassann sem næmi meiru en hækkuninni á veiðigjaldi sjávarútvegarins sem mikið var þrefað um á Alþingi í mestallt sumar. Aur sem mætti nota í endurbætur á Suðurlandsvegi. ISAVIA hefur oft gefið út spár um ferðamannafjölda, en í raun eru það framkvæmdir ISAVIA við aukningu afkastagetu flugvallarins sem að mestu ráða ferðamannafjöldanum (sem auðvitað passar svo við spárnar). Réttara væri því að tala um áætlanir ISAVIA um afkastagetu og ferðamannafjölda frekar en spár.
    Mjög brýnt er að ríkisstjórnin marki sér stefnu til lengri tíma um fjölgun ferðamanna þar sem tekið er mið af áhrifum hratt fjölgandi fjölda ferðamanna á alla innviði, t.d. fasteignamarkað, þenslu á byggingamarkaði, samgöngukerfi, skólakerfi (fólksfjölgun, börn erlendra starfsmanna), heilbrigðiskerfi, löggæslu, áhrif þenslu á verðbólgu o.fl.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár