Barátta SFS gegn leiðréttingu á veiðigjöldum hefur skilað litlum árangri meðal almennings. Etv. er það vegna þess að sá málflutningur að stefna stjórnvalda sé árás á útgerð í landinu fær lítinn hljómgrunn. Ágreiningurinn snýst ekki um útgerðina. Almenningur er meðvitaður um mikilvægi sjávarútvegs og telur hann vel rekinn en er ekki sáttur við að arður af fiskveiðiauðlindinni renni nær allur til fárra útvalinna en lítið til eigenda hennar og samfélagsins sem lagði grundvöll að arðsemi hennar.
SFS hefur í baráttu sinni beitt áróðri og þrýstingi á íbúa og sveitarstjórnir á landsbyggðinni með fullyrðingum um að verið sé að skattleggja landsbyggðina og rýra tekjur íbúa og sveitarfélaga. Leikræn sviðsetning nær þó ekki til að fela þá staðreynd að það er eigendur stórútgerða sem bera veiðigjöldin að mestu leyti og að þar sem veiðigjöld hafa ekki áhrif á aflamagn, löndun og fiskvinnslu hafa þau hvorki áhrif á tekjur þeirra sem starfa við …
þjóðarinnar í gegnum ríkissjóðs og ekki heldur í gegnum sveitarsjóði eða i launumslög.
Arður leitar ævinlega á þær slóðir sem eigendum fyrtækjanna Kjósa