Hver er Hamlet?

Sigríður Jóns­dóttir leik­hús­gagn­rýn­andi skrifar um upp­færslu Borg­ar­leik­húss­ins á Hamlet eftir William Shakespe­are, í leik­stjórn Kolfinnu Niku­lás­dóttur.

Hver er Hamlet?
Leikhús

Hamlet

Höfundur William Shakespeare
Leikstjórn Kolfinna Nikulásdóttir
Leikarar Sigurbjartur Sturla Atlason (Hamlet), Berglind Alda Ástþórsdóttir (Ófelía), Sólveig Arnarsdóttir (Gertrúd), Hilmir Snær Guðnason (Kládíus), Vilhelm Neto (Pólóníus), Hákon Jóhannesson (Hóras), Hjörtur Jóhann Jónsson (Laertes).

Leikgerð: Kolfinna Nikulásdóttir og Sigurbjartur Sturla Atlason Leikmynd og búningar: Filippía Elísdóttir Ljósahönnun: Pálmi Jónsson Höfundur hljóðmyndar og tónlistar: Salka Valsdóttir Dans og sviðshreyfingar: Kolfinna Nikulásdóttir og Ernesto Camilo Aldazabal Valdes Þýðing: Helgi Hálfdanarson, Ingvaldur Nikulásson, Matthías Jochumsson og Þórarinn Eldjárn

Borgarleikhúsið
Niðurstaða:

Sérstaklega forvitnileg sýning sem skilur þó eftir tilfinningalegt tómarúm.

Gefðu umsögn

Hver kyn­slóð þarf nýjan Hamlet. Hamlet sem talar nýtt tungu­mál, setur hlut­ina í nýtt sam­hengi, tengir yngri kyn­slóðir við mátt Shakespe­are og hvetur þau til að velta heim­inum fyrir sér og þeirra hlut­verk í honum. Því er mikið fagn­að­ar­efni að nú Hamlet rati á Litla svið Borg­ar­leik­húss­ins í leik­stjórn Kolfinnu Niku­lás­dóttur og er þetta í fyrsta skiptið sem kona leik­stýrir Hamlet fyrir Leik­fé­lag Reykja­víkur í 130 ára sögu þess. Sýningin hefst á stóru spurn­ing­unum: Hvað er leik­hús? Til hvers leik­hús? Hvað eru áhorf­endur að gera hér? 

Það er Sig­ur­bjartur Sturla Atlason sjálfur sem kastar spurn­ing­unum fram í upp­hafi kvölds­ins og í kjöl­farið glímir við stærsta hlut­verk leik­fer­ils síns. Fyrsta skrefið var tekið í hlut­verki Rómeó árið 2021 en nú er það Hamlet, sem má telja eitt flókn­asta hlut­verk sög­unnar. Í heild­ina tekst Sig­ur­bjarti ágæt­lega til þrátt fyrir nokkra hnökra á texta­flutn­ingi. Aftur á móti er sem hjúpur umlyki Hamlet, …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár