Baðstaður veldur klofningi í Önundarfirði

Halla Signý Krist­jáns­dóttir, fyrrum þing­maður, segir bað­stað við Holts­fjöru munu hafa áhrif á fugla­líf og frið­sæld svæð­is­ins. Baðlón séu fal­leg en dýr: „Er það sem okkur vantar, alls staðar?“ Fram­kvæmd­ar­að­ili segir að bað­stað­ur­inn verði lít­ill og að til­lit hafi verið tekið til athuga­semda í umsagn­ar­ferli.

Baðstaður veldur klofningi í Önundarfirði
Fyr­ir­hug­aður bað­staður Samkvæmt til­lögu mun bað­stað­ur­inn rísa á landi Þóru­staða í Önund­ar­firði.

alla Signý Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, segir stað­setn­ingu fyr­ir­hug­aðs bað­staðar í Önund­ar­firði „skelfi­lega og skað­lega“.

Halla Signý gerir meðal ann­ars athuga­semdir við hug­mynd­ina vegna fugla­lífs á svæð­inu eins og margir fleiri aðilar hafa gert í umsagn­ar­ferli verk­efn­is­ins. Hverf­is­ráðs Önund­ar­fjarðar hefur hins vegar fagnað hug­mynd­inni, svo fram­ar­lega sem umhverfi stað­ar­ins verði áfram óbreytt úti­vist­ar­svæði, enda bjóði verk­efnið upp á meiri afþr­ey­ingu fyrir ferða­menn og heima­menn.

Bað­stað­ur­inn yrði kall­aður Hvít­i­s­andur og á að rísa í Holts­fjöru í Önund­ar­firði í landi Þóru­staða. Þar er nú flug­braut á vegum Isavia, í miðju æðar­fugla­varpi, sem ekki er lengur í notkun. „Í dag er Holts­fjara vin­sæl til úti­vistar en þar eru hvítir sandar í stór­brotnu umhverfi,“ segir í upp­lýs­ingum um til­lög­una á Skipu­lags­gátt.

„Áætlað er að nýta núver­andi aðkomu­veg að Holts­bryggju sem aðkomu að bað­staðnum og nýta gömlu mal­bik­uðu flug­braut­ina fyrir aðkomu og bíla­stæði. Núver­andi vega­slóði frá flug­braut­ar­enda niður í gamla sand­námu í Holts­fjöru verði nýttur sem aðkoma gesta frá bíla­stæð­inu að böð­unum. Sjálf böðin eru áformuð í gam­alli sand­námu sem þarna er í fjör­unni.“

Fyr­ir­huguð stað­setn­ing bað­lónsBaðlónið yrði við Holts­bryggju þar sem hvítur sandur prýðir Holts­fjöru.

Í til­lög­unni kemur fram að mann­virki vegna bað­anna verði að mestu leyti bundin við svæði sem nú þegar hefur verið raskað vegna flug­vall­ar­ins og námunnar. Ekki er til deiliskipu­lag fyrir svæðið og breyta þarf aðal­skipu­lagi Ísa­fjarð­ar­bæjar til þess að breyt­ing­arnar verði að veru­leika. „Þá er áfram miðað við að almenn­ingur hafi aðgang að fjör­unni og þar verði opin sturtu­að­staða fyrir öll sem vilja baða sig í sjónum, hér eftir sem áður, án þess að fara í böðin.“

Heild­ar­kostn­aður við fram­kvæmd­ina verður 1,5 millj­arður króna og mun rekst­ur­inn skapa 20 árs­verk, að því fram kemur í umfjöllun Bæjarins besta.

Spyr hvort baðlón þurfi alls staðar

Halla Signý hefur búið í Holti í Önund­ar­firði, stein­snar frá Holts­fjöru, og er verk­efna­stjóri hjá Fræðslu­mið­stöð Vest­fjarða. Upp­runa­lega er hún frá Brekku á Ingalds­sandi yst í firð­inum.

Hún skrifar grein í hér­aðs­mið­il­inn Bæjarins besta þar sem hún mót­mælir hug­mynd­inni. „Nú er svo komið að það þarf að vera bað­lón hring­inn í kringum landið, helst svo mörg að ferða­menn nái ekki að láta hárið þorna á milli lóna,“ skrifar Halla Signý. „Gott og vel, bað­lón eru ágætis við­bót, mörg fal­leg, þrifa­leg og bjóða upp á góða en auð­vitað dýra þjón­ustu en við þurfum að spyrja okkur, er það sem okkur vantar, alls staðar?“

Halla Signý Krist­jáns­dóttirFyrr­ver­andi þing­maður segir svæðið eiga sér merka sögu.

Hún bendir á líf­legt fugla- og dýra­líf á svæð­inu og það að lík­lega megi telja um 4000 hreiður á þeim sex jörðum sem æðar­rækt­inni er sinnt við fjörð­inn. Æðarvörp séu frið­lýst þrjá mán­uði á ári. „Áætlað bað­lón kúrir fyrir miðju svæði þar sem fjórar jarðir sinna æðar­rækt,“ skrifar Halla Signý. „90% af æðar­dúni sem nýttur er í heim­inum kemur frá Íslandi enda hefur æðar­fugl­inn notið friðar hér frá árinu 1786 og alfrið­aður á Íslandi frá árinu 1847. Fuglinn hefur notið mik­illar virð­ingar hér á landi frá upp­hafi byggðar.“

Þá skrifar hún að Gull­ströndin, eins og ströndin við Holts­fjöru er stundum kölluð, eigi sér merka sögu. „Gull­ströndin er, fyrir fólkið í firð­inum, ímynd kyrrðar og feg­urðar, hvernig ætlum við að verð­meta það? Við það mat er hægt að líta til friðlands­ins Horn­stranda. Líklega er eng­inn sem vill ganga til baka með þá ákvörðun að nýta og njóta þeirra eins og þær eru, því í nátt­úr­unni sjálfri er auð­ur­inn fólg­inn. Hún yrði ekki mögnuð upp þótt þar risi millj­arða afþrey­ing því fólkið er að sækja í nákvæm­lega það sem þar er að finna. Sama á við um Holts­fjör­una.“

„Glimr­andi og dýr afþrey­ing en því miður er stað­setn­ingin skelfi­leg, já og skað­leg“

Loks segir hún að heild­ar­myndin hafi ekki verið skoðuð og ekki allar breytur teknar inn í mynd­ina. „Hug­myndin að bað­lóni er komin á blað, á meðan hún var í háloft­unum, var þetta fal­leg bygg­ing, ágæt hug­mynd, glimr­andi og dýr afþrey­ing en því miður er stað­setn­ingin skelfi­leg, já og skað­leg.“

Tillit tekið til athugasemda

Runólfur Ágústs­son, fram­kvæmda­stjóri Hvíta­sands ehf. sem stendur að verk­efn­inu, segir í svari við grein Höllu Signýjar að ekki sé um bað­lón að ræða, eins og þing­maður fyrr­ver­andi lýsti verk­efn­inu. Til standi að á svæð­inu verði „gufu­böð, heitur pottur og set­laug sem starf­rækja á yfir sum­ar­tím­ann og er á stærð við þokka­legt ein­býl­is­hús að grunn­fleti,“ skrifar Runólfur.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Gróðavon ræður ferðinni sem endranær. Ömurlegt.
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Mér skilst að spóa fari fækkandi á Íslandi. Það kemur fram í greininni að hann verpi á svæðinu. Það verður vonandi tekið tillit til þess við þessa framkvæmd þannig að hún bitni ekki á spóanum, eða öðrum fuglum.
    2
  • KKJ
    Katrin Kinga Jósefsdóttir skrifaði
    Ótrúleg skammsýni, hversu oft getur þjóðin sagað greinina sem hún situr sjálf á ? Fjaran verður aldrei eins aftur og ef heimurinn á sér yfir höfuð einhverja framtíð þá hvernig verður hún hjá komandi kynslóðum sem erfa munu landið ?
    3
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Æðarvarp er oft ekki búið, fyrr en um miðjan júlí. En þótt varpið sé búið, eru kollurnar með litla unga lengur, við landið áður en þær fara dýpra.Ef af þessu verður, á þá að opna staðinn frá og með 15.júlí?
    2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Náttúruvernd hefur ekki vafist fyrir þessum fyrrum þingmanni þegar reisa á virkjanir eða koma upp laxeldi. Eini gallinn við þessa baðströnd er að hún er ekki nógu stór í sniðum.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár