Íslendingur í Los Angeles: „Það er með ráðum gert til að æsa hlutina upp“

Íbúar Los Angeles mót­mæla áfram inn­flytj­enda­stefnu Banda­ríkja­for­seta sem hefur sent her­lið í borg­ina. Íslensk kona búsett í borg­inni segir fólk ótt­ast inn­flytj­enda­eft­ir­litið og nágranna standa saman til að mæta yfir­gangi þess.

Íslendingur í Los Angeles:  „Það er með ráðum gert til að æsa hlutina upp“
Mótmæli í Los Angeles Dröfn segir mót­mælin ekki af þeirri stærð­argráðu að við­brögð Banda­ríkja­for­seta séu rétt­læt­an­leg. Mynd: AFP

Íbúar Los Angeles mót­mæla áfram hand­tökum ICE-liða á inn­flytj­endum og aðgerðum Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta sem hefur sent land­göngu­lið til borg­ar­innar. Íslend­ingur búsettur í borg­inni segir stjórn­völd sjálf bera ábyrgð á æsingnum.

Mótmæli brut­ust út á dög­unum eftir að starfs­menn ICE, inn­flytj­enda­stofn­un­ar­innar, beittu hörðum aðgerðum gagn­vart íbúum borg­ar­innar. Trump skip­aði þjóð­varð­ar­lið­inu að mæta því sem hann kall­aði „inn­rás“ ólög­legra inn­flytj­enda í borg­inni og bætti í með því að senda land­göngu­liða.

Gavin Newsom, rík­is­stjóri Kali­forníu, sagði beit­ingu Trumps á her­liði í borg­inni brot gegn stjórn­ar­skrá og hyggst mæta honum fyrir dóm­stólum. Lög­reglan í borg­inni hafi meira en dugað til þess að sinna mót­mæl­unum sem hafi verið tak­mörkuð við ákveðin svæði í borg­inni.

Dröfn Ösp Snorra­dóttir-RozasÍslensk kona búsett í Los Angeles segir nágranna taka höndum saman um að verja hver annan frá ICE.

„Trump hefur alltaf sýnt okkur hvaða mann hann hefur að …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár