Svæði

Los Angeles

Greinar

Tapaði öllu en er kominn aftur á toppinn
Viðtal

Tapaði öllu en er kom­inn aftur á topp­inn

Sindri Már Finn­boga­son missti fyr­ir­tækið sem hann stofn­aði í hrun­inu, brann út í starfi í Danmörku og flutti til Los Angeles þar sem hann fram­leiddi kvik­mynd sem fékk væg­ast sagt dræma dóma. Hann hafði lítið sem ekk­ert á milli hand­anna þegar hann flutti aftur til Íslands fyrir þremur árum og stofn­aði miða­sölu­vef­inn Tix.is, sem nú er með yfir níu­tíu pró­sent mark­aðs­hlut­deild á Íslandi og kom­inn í útrás í Skand­in­avíu.
Stórt skref að tala um árás en ekki slys
Viðtal

Stórt skref að tala um árás en ekki slys

„Ertu tryggð?“ var eitt það fyrsta sem banda­ríski bráðalið­inn spurði Silju Báru Ómars­dóttur þar sem hún lá alblóðug á heim­ili sínu í Los Angeles eftir alvar­lega árás. Örlög bráðalið­ans, sem valdi sér það starf að bjarga manns­lífum, eru þau að hann verður að spyrja þess­arar spurn­ingar áður en ákveðið er hvert skuli fara með sjúk­ling. Banda­rískt heil­brigð­is­kerfi gerir það að verkum að hann fer ekki með fólk á besta mögu­lega stað, heldur á þann stað sem fjár­ráð sjúk­lings leyfa. Silju Báru tókst með naum­indum að hvísla nafn háskóla síns, USC, og bráðalið­inn tók því sem stað­fest­ingu á því að hún væri með trygg­ingar frá skól­anum. Sem betur fer.

Mest lesið undanfarið ár