Bæjarfulltrúi vill afnema lög um jöfn kynjahlutföll í opinberum nefndum

Klausu um að sveit­ar­fé­lagið gæti að reglum um jafn kynja­hlut­fall við skipun í nefndir er ekki að finna í nýjasta árs­reikn­ingi Kópa­vogs­bæjar en slík klausa hefur verið í árs­reikn­ingum um ára­bil. Minni­hlut­inn gagn­rýnir meiri­hlut­ann fyrir að brjóta sveit­ar­stjórn­ar­lög og reglur um jafnt kynja­hlut­fall í nefndum.

Bæjarfulltrúi vill afnema lög um jöfn kynjahlutföll í opinberum nefndum
Andri Steinn Hilm­ars­son, bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks í Kópavogi Mynd: Stjórnarráðið

Á síð­asta fundi bæj­ar­stjórnar Kópavogs lagði minni­hlut­inn fram bókun um að meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar brjóti gegn bæði sveit­ar­stjórn­ar­lögum og lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynj­anna við skipan í nefndir bæj­ar­ins. „Í stað þess að leið­rétta skip­an­ina velur meiri­hlut­inn að fjar­lægja þá klausu úr árs­reikn­ingi bæj­ar­ins þar sem áður kom fram að bæj­ar­fé­lagið fari að þessum lögum. Sú yfir­lýs­ing hafði árum saman verið hluti af ófjár­hags­legum upp­lýs­ingum í árs­reikn­ingi Kópavogs," segir í bók­un­inni.

Í yfir­lýs­ingu um stjórn­ar­hætti og ófjár­hags­legar upp­lýs­ingar í árs­reikn­ingi Kópa­vogs­bæjar fyrir árið 2024, sem stað­festur var á fundi bæj­ar­stjórnar í gær, er ekk­ert að finna um kynja­hlut­föll í nefndum. Þegar árs­reikn­ingur fyrir 2023 er skoð­aður er þar hins vegar sér­stök klausa þar sem vísað er í að sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum gildi ákveðnar reglur um kynja­hlut­föll í nefndum. Þá segir: „Sveit­ar­fé­lagið gætir að þessum reglum við skipan í nefndir.“ Síðan stendur að hvað bæj­ar­stjórn­ina varðar ráð­ist …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár