Það snjóar í sjónum

Kvikmynd Davids Attenborough mun vonandi beina athygli okkar í auknum mæli að hafinu. Eins og hér kemur fram þekkjum við ótrúlega lítinn hluta af mikil­vægasta hluta þess, djúpsævinu.

Kvikindin á djúpsævinu eru sum ótrúlegri en orð fá lýst.
Kvik­indin á djúp­sæv­inu eru sum ótrú­legri en orð fá lýst.

Vissuð þið að það er stöðug snjókoma í hafdjúpunum?

Hin magnaða kvikmynd Davids Attenborough um hafið hefur beint athyglinni að sjónum og því sem þar fer fram, en um leið vekur hún athygli á því hve lítið við vitum í rauninni um það. Mynd Attenboroughs sýnir ekki síst áhrif okkar mannanna á lífríki sjávar nærri ströndum, það er að segja á land­grunninu svokallaða, en það er svæðið niður á 200 metra dýpi.

Hvað kemur Usain Bolt málinu við?

200 metrar er ekki mikið. Hljóp ekki Usain Bolt vega­lengdina á 19,19 sekúndum fyrir 16 árum, þótt vissulega væri hann uppi á yfir­borðinu í Berlínu?

Samanlögð landgrunns­svæði jarðar eru vissulega ansi víðáttu­mikil, eða 27 milljónir ferkílómetra. Það er svolítið stærra svæði en öll Norður-Ameríka með bæði Banda­ríkjunum og Kanada og öllu saman. En þó er land­grunnið ekki nema rúm 7 prósent af öllu hafinu.

Við vitum …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár