Lágu á baðherbergisgólfinu á meðan árásirnar gengu yfir

Frá því að stríðið í Úkraínu hófst fyrir þremur árum fór Óskar Hall­gríms­son í sitt fyrsta frí í síð­ustu viku. Hann var nýkom­inn aftur til Kænu­garðs þegar hann var vak­inn með látum. Verið var að ráð­ast á borg­ina.

Lágu á baðherbergisgólfinu á meðan árásirnar gengu yfir

Aðfara­nótt fimmtu­dags­ins 24. apríl flugu rúss­neskir drónar yfir höf­uð­borg Úkraínu með stýri- og skot­flaugar. Að minnsta kosti 13 létu lífið í árásinni og yfir 100 særð­ust í mann­skæð­ustu árás árs­ins á Kænugarð til þessa. Þeirra á meðal er 45 ára gam­all maður sem lést á sjúkra­húsi á þriðju­dag.

Kvöldið fyrir árás­ina hafði ég snúið aftur heim til Kænu­garðs eftir rúm­lega tveggja vikna frí, fyrsta fríið frá því að stríðið hófst fyrir þremur árum. Ég var útsof­inn eftir vel nýttar kyrrð­ar­nætur á sveita­hót­elum í vest­ur­hluta lands­ins og ætl­aði að byrja rólega aftur að vinna, klára hálf­skrif­aða grein og mögu­lega skreppa síðan aftur upp í sveit.

„Óskar! Vaknaðu, það er risa­stór árás í gangi!“

Við hjónin logn­uð­umst út af um mið­nætti, eftir klukku­tíma sjón­varps­gláp. Hálftíma síðar vakti konan mín mig með látum: „Óskar! Vaknaðu, það er risa­stór árás í gangi!“

Við heyrðum dróna fljúga lágt yfir hús­inu. Nokkrum sek­úndum síðar skall á …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár