Nítjándu aldar hagkerfi þvingað inn í 21. öldina

Forseti Banda­ríkj­anna hefur sett fjár­mála­kerfi heims­ins í upp­nám með hringl­anda­hætti í kringum tolla­stefnu Banda­ríkj­anna. Hag­fræð­ingur segir afleið­ing­arnar þær að hag­kerfið snúi aftur til nítj­ándu aldar hugs­unar.

Nítjándu aldar hagkerfi þvingað inn í 21. öldina
Donald Trump til­kynnti um skarpa hækkun tolla, og frestaði þeim svo tæpri viku síðar. Mynd: AFP

Helm­ings­líkur eru á að kreppa muni fylgja tolla­stríði Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, að mati grein­enda tveggja banda­rískra banka, J.P. Morgan og Goldman Sachs. Óvissan er slík að það er ómögu­legt að segja hvað úr verður. Óvænt til­kynn­ing Trumps á mið­viku­dag um að fresta gild­is­töku hæstu tolla – að Kín­verjum und­an­skildum – hefur aðeins aukið óviss­una og ógnar enn hag­vexti víða. 

Við­skipta­halli Banda­ríkj­anna er umtals­verður og mark­mið toll­anna er að rétta af hlut banda­ríska hag­kerf­is­ins. Hag­fræð­ingar sem Heim­ildin ræddi við sjá þó ekki fyrir sér að toll­arnir bæti stöðu Banda­ríkj­anna, frekar að þeir verði til þess að end­ur­vekja nítj­ándu aldar iðn­að­ar­sam­fé­lag og þvinga það inn í 21. öld­ina. Formúlan sem var notuð til þess að reikna út toll­ana er aðhlát­ursefni flestra hag­fræð­inga, sem segja hana ekki draga fram raunsanna mynd af við­skipta­halla milli Banda­ríkj­anna og ann­arra landa.

Tollar eða ekki tollar?

Það varð uppi fótur og fit á heims­mörk­uðum …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár