Grimmur aprílmánuður Trumps hins síðari

Evr­ópskir emb­ætt­is­menn safn­ast saman í vik­unni í höf­uð­borg Banda­ríkj­anna þar sem þeir leita leiða til að kom­ast út úr því sem orðin er versta krísa heims­við­skipt­anna í heila öld.

Grimmur aprílmánuður Trumps hins síðari
Óvissa Fjár­festar virð­ast ekki treysta Trump for­seta til að end­ur­reisa amer­ískan iðnað. Mynd: AFP

Það verða liðnir hund­rað dagar frá því Trump komst aftur til valda í vik­unni. Kannski munu þeir duga til að koma í gegn breyt­ingum á efna­hags­skipan heims­ins sem rætt hefur verið um reglu­lega á öllum þessum fyrsta árs­fjórð­ungi ald­ar­innar. 

Fyrst fór að bera á því breyt­inga­tali eftir að tækni­bólan sprakk árið 2001. Sér­stak­lega var síðan búist við algerum efna­hags­legum umbreyt­ingum eftir alþjóð­legu fjár­málakrís­una árið 2008. Raunar hefði verið rétt­ara að kalla hana Norður-Atl­ants­haf­skrís­una eins og Adam Tooze sagn­fræði­pró­fessor benti á í bók sinni um hrunið (Crashed – How a Decade of Financial Crises Changed the World) sem kom út árið 2018. Þær umbreyt­ingar létu þó á sér standa, á yfir­borð­inu, þó að pípu­lagnir alþjóð­lega fjár­mála­kerf­is­ins hefðu verið lag­færðar og breytt í vissum grund­vall­ar­þáttum. 

Heims­far­ald­ur­inn 2020 sneri svo á haus hug­mynd­inni um hver kraftur rík­is­ins getur verið við að bjarga hag­kerf­inu. Eftir að við höfðum lært hvernig seðla­bank­arnir björg­uðu …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár