Verður umvafinn dyggum þjónum

Val Trumps á ráð­herrum og stjórn­endum lyk­il­stofn­ana banda­ríska rík­is­ins hefur verið sagt til marks um það að hann vilji fólk sem sýni honum holl­ustu. Sú sem Trump vill að leiði dóms­mála­ráðu­neytið reyndi að hjálpa honum að snúa við kosn­inga­úr­slit­unum árið 2020.

Verður umvafinn dyggum þjónum
Trump Donald Trump mætir til leiks árið 2025 með skýr­ari hug­mynd um hvað felst í störfum for­seta en árið 2017 og sterkara lið í kringum sig. Mynd: AFP

Ein birt­ing­ar­mynd þess hvernig höml­urnar gætu orðið minni á öðru kjör­tíma­bili Donalds Trump sem for­seta Banda­ríkj­anna felst í því hvernig hann hefur valið ráð­herra­lið sitt og stjórn­endur ýmissa lyk­il­stofn­ana sem ýmist hafa eða bíða þess að fá sam­þykki frá þing­inu.

Þar eru færri „hefð­bundnir“ Repúblikanar með reynslu úr stjórn­málum eða stjórnun rík­is­stofn­ana en tóku sæti í fyrri rík­is­stjórn hans og gagn­rýnendur segja að í mörgum til­fellum hafi kröfur um hæfni verið látnar víkja fyrir fylgi­spekt við for­set­ann. Sér­stak­lega á þetta við í veiga­miklum emb­ættum sem snerta varn­ar­mál, örygg­is­mál, lög­reglu­mál og dóms­mál. 

Ef vilji Trumps nær fram að ganga í þing­inu verður alrík­is­lög­reglan FBI sett í hend­urnar á lög­fræð­ingi sem heitir Kash Patel. Hann hefur gagn­rýnt stofn­un­ina sem Trump vill nú að hann stýri harð­lega. Í bók sem hann gaf út 2023 tal­aði hann …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁR
    Ásmundur Richardsson skrifaði
    Hvað segir þetta mannaval um virkni lýðræðis og réttinda borgaranna fram veginn?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár