Erlingur Erlings­son segir Banda­ríkin hafa sýnt að þau séu óút­reikn­an­leg og ósvífin, auk þess að bera ekki virð­ingu fyrir leik­reglum alþjóða­kerf­is­ins. Mynd: AFP

Íslendingar þurfi að ákveða hvar þeir staðsetja sig: „Þetta eru mjög válegir tímar“

Pól­skipti hafa átt sér stað í vest­rænu varn­ar­sam­starfi með skyndi­legri stefnu­breyt­ingu Banda­ríkj­anna í utan­rík­is­málum, segir Erlingur Erlings­son hern­að­ar­sagn­fræð­ingur. Hætta geti steðjað að Íslandi en Banda­ríkin hafi sýnt að þau séu óút­reikn­an­leg og beri ekki virð­ingu fyrir leik­reglum alþjóða­kerf­is­ins.

„Það eru girð­ingar að falla um alla sveit­ina sem við búum í. Það er brjálað bjarn­dýr laust og helsti vinur okkar er allt í einu kom­inn í vin­áttu­sam­band við þetta bjarn­dýr. Það er auð­vitað áhyggju­efni. Þetta eru mjög válegir tímar.“

Þetta segir Erlingur Erlings­son, hern­að­ar­sagn­fræð­ingur og fyrr­ver­andi starfs­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hann hefur einnig starfað á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna og NATO í Afganistan. 

Erlingur Erlings­son hern­að­ar­sér­fræð­ingur

Erlingur segir atburða­rás­ina, sem hófst í síð­ustu viku með ræðu  varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna á fundi bak­hjarla Úkraínu í Brussel, virð­ast versna frá degi til dags. „Það er verið að brjóta niður örygg­is­kerfi sem hefur gilt frá 1945, svo það færir okkur auð­vitað til þess tíma þegar öflug ríki gátu farið sínu fram í krafti her­valds. Sem er mjög hættu­legt, sér­stak­lega fyrir smá­ríki,“ segir hann, en tekur fram að þrátt fyrir allt stefni ekki í heims­styrj­öld að svo stöddu. 

Ákall til öfgahægriflokka …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Trump er fulltrúi þeirra alþjóðlegu hagsmuna sem hafa tekið yfir Bandaríkin. Þeir hlæja upp úr erminni að þeim sem þeir hafa blekkt með lygum um hluti sem þeim er alveg sama um eins og innflytjendamál og trúarbrögð. En hver stendur eiginlega á bak við það? Ég myndi giska á aðallega Rússland, Ísrael, Sádi-Arabíu, Kína, auk bandarískra árganga þeirra eins og Musk sem er upprunalega frá S. Afríku (og auðvitað einhverjir fæddir í Bandaríkjunum sem munu njóta góðs af).
    1
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Sé það bandaríska skefjalausa, grímulausa, stjórnlausa og ríkisvædda hryðjuverk sem við flest sem sjáum og heyrum erum vitni að daglega ekki heimsstyrjöld þá verður einhver að segja mér hvað það þá er sem MAGA /Trump trúarbrögðin eru að vekja upp.
    2
  • Brynja Óskarsdóttir skrifaði
    Mjög sterk grein!
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár