VÆB: Sigur nýrrar kynslóðar

Z-kyn­slóðin er að taka við. Sjáið og trúið.

VÆB: Sigur nýrrar kynslóðar
VÆB Verður full­trúi Íslands í Eurovision í Basel í Sviss, 13. maí næst­kom­andi.

Sjaldan hefur mál­tækið„þeir fiska sem róa“ átt betur við. VÆB tap­aði í Eurovision í fyrra en kom aftur, fyllt seiglu og reynslu, með lag sem er vitn­is­burður um bæði sígildan veru­leika Íslend­inga og yfir­burði nýrrar kyn­slóðar: Ekki aðeins glitr­andi eins og sum­ar­gots­síld heldur með útþrá eld­is­lax við kví­ar­rof. 

Að vera séður er að vera til

Í síð­ustu söngvakeppni tromm­uðu VÆB upp með ádeilu á veru­leika okkar: Líf mitt er bíó­mynd. Þar birt­ist óum­semj­an­leg ein­stak­lings­hyggja í bland við voyeurisma: Þörfina fyrir að vera við­fangs­efni áhorfs og aðdá­unar.

„Ég geri það sem mig langar til, því líf mitt er bíó­mynd, svo náðu í poppið, kall­inn,“ sungu þeir. Und­ir­liggj­andi en lítt dulin er síðan ýmist þörf eða krafa um að skara fram úr á for­sendum til­vistar sinnar einnar og sér. „Ég mæti til­bú­inn, ég vil fá verð­launin, því að lífið mitt er lang­besta kvik­myndin.“

Tilkall kyn­slóðar

Z-kyn­slóðin, sem kemur í kjöl­far þús­ald­ar­kyn­slóð­ar­innar, hefur verið tengd við ýmis trend. Hún nálg­ast vinnu meira á eigin for­sendum en fyrri kyn­slóðir, þar sem þær eldri stát­uðu af „vinnu­sið­ferði“ sínu. Hugtakið þögul upp­sögn (e. quiet quitting) hefur verið tengd við hana, þar sem fólk ákveður að leggja fram sem minnst fram­lag ef til­gang­ur­inn fyrir sjálfið er ekki þess rík­ari. Sjálfið trompar skyld­una. Kyn­slóðin er talin prag­mat­ísk­ari og efn­is­hyggju­sinn­að­ari en þús­ald­ar­kyn­slóðin. Um leið er hún prýdd metn­aði og þjökuð meiri kvíða en fyrri kyn­slóðir, að minnsta kosti mældum.

Karl­kynið af Z-kyn­slóð­inni er til­búið að taka við kefl­inu. Það er með til­kall. Í Banda­ríkj­unum er ríf­legur meiri­hluti karl­kyns Z-kyn­slóð­ar­manna stuðn­ings­menn Donalds Trump. Þeir vilja fá að gera meira og vera meira, án þess að þurfa að lúta ytri lög­málum og hömlum. Z-kyn­slóðin er engir hippar í leit að heims­friði. Þau vilja frekar sigra heim­inn.

Andi frum­kvöðla

Í sig­ur­lagi VÆB í ár, Róandi, svífur andi nýsköp­unar, sjálfs­ör­yggis og taum­lauss drif­krafts yfir vötnum. Gild­is­mat Z-kyn­slóð­ar­innar er að hluta sam­gróið hug­mynda­fræði nýsköp­un­ar­innar. Mistök eru til þess að læra af, eða græða á. „Þetta redd­ast“ í þriðja veldi.

„Ég set spýtu ofan á spýtu og kalla það bát,“ syngur VÆB. „Ef ég sekk í dag er það ekk­ert mál.“ 

Ein­kenn­is­orð kyn­slóð­ar­innar eru lík­lega „Let's go“ og á því hefst lagið. Maður verður að leggja af stað – og halda áfram. Viljinn yfir­stígur allt.

„Er sjór­inn opn­ast koma öld­urnar. Róandi hér, róandi þar. Róa í gegnum öld­urnar,“ syngja VÆB.

Róður þeirra er ekki róður galeiðu­þræla í gömlu skrif­stofu­vinn­unni, heldur útrás­ar­vík­inga. Það er ólíkt eldri kyn­slóð­unum með lærða hjálp­ar­leysið, eða það raun­gerða, þar sem talað var um þungan róður.

Tími Væbsins

Orðið væb er dregið af enska orð­inu „vibe“, sem þýðir „greini­leg til­finn­ing eða sá eig­in­leiki að geta verið skynj­aður“. Með öðrum orðum, orð yfir það sem er af því að það virð­ist vera.

Við lifum á tímum væbs­ins, þar sem væbið hefur yfir­tekið veru­leik­ann. Kannski fram­þróuð útgáfa heims­ins af því sem heim­spek­ing­ur­inn Baudrill­ard kall­aði ofur-veru­leika, þar sem tákn­heimur ekki aðeins yfir­skyggir heldur kemur í stað und­ir­liggj­andi veru­leik­ans.

Ásýndin og skynj­unin trompar allt. Það sem fólk trúir verður raun­veru­leik­inn. Forseti Banda­ríkj­anna ræður sér­fræð­inga í fram­komu í áhrifa­mestu emb­ættin, svo sem þátt­ar­stjórn­endur frá Fox News. Leið hans til sig­urs var að halda því fram um heim­inn sem heyr­ist best, ekki að segja satt eða virða til­vist ann­arra. 

Það sem áður var

Val okkar í Eurovision hefur gjarnan verið tákn­mynd sinnar sam­tíðar. Í fyrra sendum við næstum palest­ínskan full­trúa fyrir okkar hönd, en end­uðum aftur á Heru Björk eftir þjóð­ern­is­bylgju. Hún hafn­aði í síð­asta sæti og féll út í und­ankeppni en söng þrjú lög í úrslita­keppn­inni hér heima 15. febr­úar síð­ast­lið­inn. VÆB er líka sokkið í veð­bönk­unum.

Árið 2019 sendum við Hatara með for­spána „Hatrið mun sigra“, sem olli usla í Ísrael með því einu að sýna palest­ínskan fána. Nú hefur hryll­ing­ur­inn sprengt skal­ann. Árið 2009, í miðjum eft­ir­leik efna­hags­hruns í kjöl­far góð­ær­is­ins, völdum við trega­fullt lag Jóhönnu Guðrúnar: Er það satt? Er það búið? 

„Það getur ekk­ert stoppað mig af“, er klifað undir lokin á fram­lagi Íslend­inga til Evrópu þetta árið. Öll nytum við stundum góðs af því að bergja af þessum brunni blinds sjálfs­trausts, en þessi sjó­ferð er rétt að hefj­ast.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár