Konur til valda: „Allar hömlur eru að bresta“

Forseti, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, atvinnu­vega­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra, for­seti Alþingis, umboðs­maður Alþingis, borg­ar­stjóri, biskup, rektor, rík­is­lög­maður, rík­is­sak­sókn­ari, rík­is­lög­reglu­stjóri, lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, land­læknir og umboðs­maður barna: Kvenna­árið 2025 urðu þau sögu­legu tíð­indi að allar þessar stöður eru skip­aðar konum.

Konur til valda: „Allar hömlur eru að bresta“
Tóku tök­una í eigin hendur For­set­inn lýsti því yfir að þetta væri dag­ur­inn sem for­sæt­is­ráð­herra lærði að taka sjálfu. Með þeim eru biskup og borg­ar­stjóri. Mynd: Golli

Konur mynda meiri­hluta rík­is­stjórn­ar­innar, með sex ráð­herra­stóla af ell­efu. Og af sex flokkum sem eiga full­trúa á Alþingi eru fjórir þeirra leiddir af konum, þeirra á meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír. Meira að segja for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins er kona. Eftir standa aðeins tveir karl­kyns for­menn stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi. 

Á vett­vangi borg­ar­innar blasir sama mynd við. Þar voru konur odd­vitar allra fimm flokk­anna sem mynda meiri­hluta. Og í raun allra flokka sem eiga full­trúa í borg­ar­stjórn fyrir utan Fram­sókn­ar­flokk­inn. 

Í því ljósi kemur ekki á óvart að borg­ar­stjóri, for­maður borg­ar­ráðs og for­seti borg­ar­stjórnar séu konur. Það á einnig við um for­menn vel­ferð­ar­ráðs, umhverfis- og skipu­lags­ráðs, skóla- og frí­stunda­ráðs, mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráðs, inn­kaupa- og fram­kvæmda­ráðs sem og almanna­varna­nefndar. Aðeins menn­ingar-, íþrótta- og tóm­stunda­ráði er stýrt af karl­manni. „Allar hömlur eru að bresta,“ segir Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­seti Alþingis. 

Aðgengi kvenna að menntun 

Í rekt­ors­kosn­ingum í síð­ustu viku var kona kjörin rektor Háskóla Íslands, …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Konur til valda

Women in Power: “The Barriers are Breaking Down”
ÚttektKonur til valda

Women in Power: “The Barriers are Breaking Down”

The Pres­ident, Prime Minister, Foreign Minister, Minister of Justice, Minister of Social Affairs and Housing, Minister of Industry, Minister of Health, Speaker of Alþingi, Parli­ament­ary Ombudsman, Mayor of Reykja­vík, Bishop, Rector, Attorney General, Director of Public Prosecutions, National Commissioner of the Icelandic Police, Police Commissioner in the Capital Region, Director of Health and Ombudsman for Children: In the Year of Women 2025, it became historic news that all these positions are held by women.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár