Mynd: Golli

Ofbeldi notað til að halda konum í skefjum

Heiða Björg Hilm­is­dóttir, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, segir þekkt að ofbeldi sé beitt til að halda aftur af konum. Sjálf hafi hún þurft að leita til lög­reglu vegna hót­ana sem að henni beindust sem konu í valda­stöðu. Hún segir gott að geta sýnt heim­inum hve margar konur séu nú á sama tíma við völd á Íslandi.

Heiða Björg Hilm­is­dóttir tók við lykla­völdum í ráð­húsi Reykja­víkur 21. febr­úar síð­ast­lið­inn, hálfum mán­uði eftir að Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í borg­ar­stjórn, sleit meiri­hluta­sam­starf­inu. Heiða hefur starfað í borg­ar­stjórn fyrir Sam­fylk­ing­una í ell­efu ár en hún kom fyrst inn sem vara­borg­ar­full­trúi árið 2014. Tæpu ári síðar tók hún sæti sem borg­ar­full­trúi.

Heiða Björg, sem mætti í mynda­töku til Golla, ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar, í Þjóð­menn­ing­ar­húsið á dög­unum ásamt for­seta Íslands, for­sæt­is­ráð­herra og bisk­upi, segir að vegna bakslags­ins sem orðið hafi í jafn­rétt­is­málum víða um heim sé afar mik­il­vægt hve margar konur séu nú við völd á Íslandi.

 „Ég get nefnt kon­urnar sem ég var með í dag sem allar gegna sínum störfum af fag­mennsku. Ég vona að almenn­ingur átti sig á, þó að það séu alls konar straumar úti í heimi þar sem verið er að tala niður konur, tala niður hinsegin fólk og tala niður alls konar þjóð­fé­lags­hópa, að við þurfum …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Heiða veit hvað hún syngur. Við verðum að taka þessi alvarlega. Og við megum ekki ekki vera hrædd. Virkjum hvert annað í að ganga fram fyrir skjöldu og lýsa yfir fullum stuðningi við réttindi kvenna, trans fólks og annarra minnihlutahópa til jafns við réttindi manna.
    0
  • IS
    Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Á sama tíma hjá Heiðu 13 konur vs 1 karl í pólitísku embætti.
    Heiða, komin með valdið, gerir að vissu leiti það sama og hún gagnrýnir, sýnir dómínans. Er það ekki ofbeldi? Hún neitar að leiðrétta þannig að samræmist mannréttindastefnu RVK kafla 2.1, um 40% lágmarkshlutfall kyns.

    Heiða ber fyrir sig óskildum þáttum til að verja að konur séu með formennsku í 9 af 10 nefndum, með borgarstjóra, forseta borgarstjórnar og formann borgarráðs. Og ber fyrir sig að íbúar hafi kosið fulltrúa og nú séu konur í meirihluta í fyrsta sinn (leiðtogalega séð já). Íbúar kusu hvergi í viðkomandi stöður. Og þó konur séu í forsvari fyrir stjórnmálaflokka, af hverju á það að víkja mannréttindastefnunni til hliðar?
    -3
    • Kristín Guðnadóttir skrifaði
      Menn stjórna heiminum og hafa stjórnað honum frá ómunatíð. En þér finnst ekkert athugavert við það.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Konur til valda

Women in Power: “The Barriers are Breaking Down”
ÚttektKonur til valda

Women in Power: “The Barriers are Breaking Down”

The Pres­ident, Prime Minister, Foreign Minister, Minister of Justice, Minister of Social Affairs and Housing, Minister of Industry, Minister of Health, Speaker of Alþingi, Parli­ament­ary Ombudsman, Mayor of Reykja­vík, Bishop, Rector, Attorney General, Director of Public Prosecutions, National Commissioner of the Icelandic Police, Police Commissioner in the Capital Region, Director of Health and Ombudsman for Children: In the Year of Women 2025, it became historic news that all these positions are held by women.
Konur til valda: „Allar hömlur eru að bresta“
ÚttektKonur til valda

Konur til valda: „Allar hömlur eru að bresta“

Forseti, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, atvinnu­vega­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra, for­seti Alþingis, umboðs­maður Alþingis, borg­ar­stjóri, biskup, rektor, rík­is­lög­maður, rík­is­sak­sókn­ari, rík­is­lög­reglu­stjóri, lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, land­læknir og umboðs­maður barna: Kvenna­árið 2025 urðu þau sögu­legu tíð­indi að allar þessar stöður eru skip­aðar konum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár