Aldrei hitt valdakonu sem ekki hafi orðið fyrir kynbundnu ofbeldi

Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, seg­ist enn ekki hafa hitt konu í valda­stöðu í heim­inum sem ekki hafi orðið fyrir ein­hverri teg­und kyn­bund­ins ofbeldis. Íslend­ingar slái ýmis met hvað varði kynja­jafn­rétti en séu „ekk­ert betri en aðrar þjóðir þegar kemur að kyn­bundnu ofbeldi“.

Aldrei hitt valdakonu sem ekki hafi orðið fyrir kynbundnu ofbeldi

Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, segir að þó að jafn­rétti kynj­anna á Íslandi sé og hafi um langt skeið verið með því mesta í heim­inum verði fjöldi kvenna hér fyrir kyn­bundnu ofbeldi og öðru órétti vegna síns kyns líkt og í öðrum löndum. „Við erum, þrátt fyrir að eiga í raun heims­met í fjölda kvenna í lyk­il­stöðum þá sér­stak­lega á stjórn­mála­svið­inu, það er aðeins annað upp á ten­ingnum í einka­geir­anum og fjár­mála­geir­anum svo það sé nú nefnt, þá erum við samt ekk­ert betri en aðrir í hvað kyn­bundið ofbeldi er mikið vanda­mál hér líka. Þannig að þrátt fyrir að þetta sé okkar staða þá er kyn­bundið ofbeldi yfir höfuð, allt frá áreiti á vinnu­stað til heim­il­is­of­beldis til kyn­ferð­is­of­beldis og jafn­vel netof­beldis, net­níðs, alveg jafnslæmt hjá okkur og öðrum þannig að við getum ekki hallað okkur aftur og sagt að við séum búin að vinna þetta vígi líka.“ 

Halla telur of …

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Agree: all males are predators lost in evolution! Only the amazons wouldn't have it!
    -1
  • SBH
    Steinunn Björg Helgadóttir skrifaði
    Mjög góð grein og gott innlegg
    1
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Dásamleg, hún Halla.
    1
  • IS
    Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Halla segir: "Sjálf trúi ég á kynjajafnvægi".
    Sjálfur átti ég von á amk jafnrétti hjá Valkyrjunum og Heiðu og Samstarfskonunum í borgarstjórn. En 38 aðgerðir fyrir konur og ein fyrir karla, 38/1, í kynjajafnréttisáætlun ríkisstjórnarinnar, og 13 konur á móti einum karli í pólitískum embættum í RVK í trássi við mannréttindastefnu RVK og þversköllun borgarstjóra við að lagfæra lofa ekki góðu.

    Enginn er óbarinn biskup segir einhvers staðar. Ekki til sú fullorðin manneskja sem ekki hefur orðið fyrir einhverju ofbeldi. Kynferðislegt ofbeldi virðist þó algengara gagnvart konum, kannski vegna styrks, en sennilega myndu flestir telja konur og stúlkur beita tíðara andlegu ofbeldi, og það getur lika varðað kynferðismál. Viðstaddir bregðast ekki eða síður við ef kona áreitir karl kynferðislega s.s. á skemmtistað skv. lýsingum.

    En það skapar vissan aukinn vanda að búa til skilgreininguna kynbundið ofbeldi OG setja undir það fjölmargt ofbeldi sem áður kallaðist einfaldlega ofbeldi. Makar fremja heimilisofbeldi gagnvart hvort öðru. Ofbeldi í lesbískum samböndum ku algengt og skilnaðir meðal þeirra miklu algengarri en gagnkynhneigðra para, en minnstir hjá hommum.
    Vandinn sem skapast við slíka skilgreiningu ofbeldis virðist vera að úrlausnir verða kynbundnar. Áhersla á eitt kyn þolenda og eitt kyn gerenda. Á meðan sömu úrlausnir geta hentað öllum óháð kyni.

    Sem betur fer hefur sumt ofbeldi minnkað á Íslandi. Gætum því að að mismuna ekki úrlausnum eftir kyni. Dómsmála-, mannréttinda- og jafnréttisráðherra mætti því sannarlega taka á þeim mismun sem karlar verða fyrir í stjórnsýslunni og dómskerfinu sem Helga Vala lögmaður hefur lýst og sem HÞG tók saman í Vísis-greininni "Lögbrot íslenskrar stjórnsýslu og dómsstóla".
    -11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Konur til valda

Women in Power: “The Barriers are Breaking Down”
ÚttektKonur til valda

Women in Power: “The Barriers are Breaking Down”

The Pres­ident, Prime Minister, Foreign Minister, Minister of Justice, Minister of Social Affairs and Housing, Minister of Industry, Minister of Health, Speaker of Alþingi, Parli­ament­ary Ombudsman, Mayor of Reykja­vík, Bishop, Rector, Attorney General, Director of Public Prosecutions, National Commissioner of the Icelandic Police, Police Commissioner in the Capital Region, Director of Health and Ombudsman for Children: In the Year of Women 2025, it became historic news that all these positions are held by women.
Konur til valda: „Allar hömlur eru að bresta“
ÚttektKonur til valda

Konur til valda: „Allar hömlur eru að bresta“

Forseti, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, atvinnu­vega­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra, for­seti Alþingis, umboðs­maður Alþingis, borg­ar­stjóri, biskup, rektor, rík­is­lög­maður, rík­is­sak­sókn­ari, rík­is­lög­reglu­stjóri, lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, land­læknir og umboðs­maður barna: Kvenna­árið 2025 urðu þau sögu­legu tíð­indi að allar þessar stöður eru skip­aðar konum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár