Það var á fögrum haustdegi árið 1836 að íbúar í bænum Krasnofimsk í Rússlandi ráku upp stór augu þegar hnarreistur aldraður maður, alhvítur á hár og skegg, hélt innreið sína í bæinn í lítilli léttakerru sem hvítur hestur dró.
Hann var ansi hávaxinn, klæddur venjulegum, grófgerðum alþýðufatnaði en virtist svo miklu hreinni og stroknari en títt var um óbreyttan almúgann í þá daga, og fas hans var líka höfðinglegra en fólk átti að venjast. Í Rússlandi voru það óskrifuð lög að alþýðufólk átti að vera niðurlútt og helst smjaðrandi og undirgefið í framkomu við sér heldra fólk.
Þessi roskni maður horfði hins vegar framan í hvern sem var. Ekki af neinum hroka heldur bara eins og hann skammaðist sín ekkert að ráði fyrir tilveru sína.
Hann horfði jafnvel framan í hreppstjórann í bænum þegar yfirvaldið kom aðvífandi til að gá hvað væri eiginlega að gerast.


























































Ég er farin ađ hugsa um karma og afleiđingar þess fyrir (framhalds) lífiđ, þađ er undir manni sjálfum komiđ. "Umbreitingar lífs okkar á sér æfinlega stađ í hjartanu"
sbr. Um hjartađ liggur leiđ.
eftir.Jack Kornfield.